Öskrubíó 3.nóv.
02/11/09 • Flokkur: Viðburðir
Öskra! – hreyfing byltingarsinnaðra stúdenta, sýnir róttækar kvikmyndir um andspyrnu fólks gegn þeim öflum sem standa fyrir ofbeldi og algjörri stjórnun á mannlegu samfélagi, eyðileggingu plánetunnar, stríðum, kúgun og ójöfnuði. Sýningarnar fara fram í stofu 101 í byggingunni Odda, Háskóla Íslands og hefjast kl. 19:30. Eftir sýningarnar fara fram umræður.
Næstkomandi þriðjudag 3.nóvember mun Öskra! beina athyglinni að róttækri umhverfisvernd og baráttunni fyrir verndun náttúrunnar.
Sýndar verða tvær stuttar myndir:
Green with a vengence: Jeffrey “Free” Luers er pólitískur fangi í Bandaríkjunum sem hlaut vægðarlausan dóm fyrir aðgerðir sínar gegn rótum umhverfis- og náttúrueyðileggingar Yfirvöld vilja bendla hann við Earth Liberation Front (ELF) en mikið kapp er lagt á að koma böndum á hreyfinguna og berja niður hugmyndir hennar.
Igniting the Revolution- An Introduction to the E.L.F:
Fjallar um róttæku umhverfishreyfinguna Earth Liberation Front (ELF) og hugmyndafræðina á bak við aðgerðir hennar. Brennandi af reiði vegna okkar deyjandi plánetu berst ELF gegn þeim öflum sem sjá gróðavon í rústun vistkerfa.
Eftir sýningu verða umræður um umhverfishreyfinguna, aðferðir hennar og stefnu.
Háskóla Íslands
Þriðjudaginn 3.nóv
Oddi. stofa 101
kl. 19:30
