Niður með Rasisma
15/10/09 • Flokkur: Viðburðir
Niður með rasisma, niður með UTL!
Mótmælum brottvísun flóttamanna frá Íslandi.
Í gær, miðvikudaginn 14. okt voru 3 flóttamenn frá Írak og Afganistan sendir á vit óvissunnar í Grikklandi þar sem þeir munu dveljast við aðstæður sem
Sameinuðu Þjóðirnar hafa úrskurðað að séu óviðunandi, og þá er mikið sagt. Þar munu þeir bíða þess að verða sendir aftur til heimalanda sinna í þær hörmulegu og lífshættulegu aðstæður sem knúðu þá til að yfirgefa fjölskyldur sínar og flýja land.
Mótmælum þessari ákvörðun, sem og rasískum og ómannúðlegum aðferðum Útlendingastofnunar (UTL), Dómsmálaráðuneytisins og lögreglunnar.
Síðar í dag verður send út önnur tilkynning um hverjir ræðumenn verða.
Hvar? - Lækjartorgi
Hvenær? - Á föstudaginn 16 okt, kl 12.
