Menning og klám í Háskóla Íslands
20/3/10 • Flokkur: Viðburðir
Opinn umræðufundur í hádeginu miðvikudaginn 24. mars 2010
Klámvæðing og klámmenning fer vaxandi í íslensku samfélagi. Klámvæðing merkir að sífellt er daðrað við táknmyndir og tilvísanir kláms í dægurefni þannig að mörkum hins „eðlilega“ og leyfilega er stöðugt ögrað og þau víkkuð út. Andstaða gegn klámi og klámvæðingu byggist ekki á andstöðu við nekt og kynlíf heldur þá mynd af kynverund kvenna og karla sem þar er dregin upp og gjarnan byggist á ofbeldi, hlutgervingu og valdatengslum. Þessi þróun teygir anga sína inn í skólakerfið, félagslíf nemenda og tómstundaviðburði. Háskólasamfélagið er hér ekki undanskilið.
Í Háskóla Íslands á sér stað gagnrýnin og lifandi umræða um þessi mál sem skólinn vill veita út í samfélagið.
Miðvikudaginn 24. mars, kl. 12 standa jafnréttisnefndir HÍ, Stúdentaráðs, Félagsvísindasviðs og Menntavísindasviðs, ásamt jafnréttisfulltrúa HÍ, fyrir opnum umræðufundi um menningu og klámvæðingu í Háskóla Íslands.
Fundurinn fer fram í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands. Hann fer að mestu fram á íslensku, annað erindanna er flutt á ensku.
Dagskrá:
Ólafur Páll Jónsson, dósent í heimspeki á Menntavísindasviði HÍ
„Lærdómur og klám“
Thomas Brorsen Smidt, MA-nemi í kynjafræði við HÍ
„For the Picture Tells Me So: Men and Pornography in the Public Sphere“
Fundarstjóri: Brynhildur Flóvenz, dósent í Lagadeild og formaður jafnréttisnefndar HÍ
Á eftir erindum verða almennar umræður. Aðgangur ókeypis og öll velkomin meðan húsrúm leyfir.
Jafnréttisnefndir HÍ, Stúdentaráðs, Félagsvísindasviðs og Menntavísindasviðs og jafnréttisfulltrúi HÍ.
