Lýðræðisleg umræða í boði Öskru!
28/10/09 • Flokkur: Viðburðir
Miðvikudaginn 28.október boðar Öskra! til umræðna í stofu 102 á Háskólatorgi kl 20:00.
Umræðuefni verða meðal annars:
- Hvað er Öskra?
- Hvað hefur Öskra gert síðan hún var stofnuð?
- Hvernig háskólasamfélag viljum við?
- Er Háskólinn þjónustufyrirtæki?
- Af hverju þarf róttæka stúdentahreyfingu?
- Hefur hin hefðbundna stúdentapólitík brugðist?
Kjörinn vettvangur fyrir opin skoðanaskipti fræðimanna, stúdenta og almennings um ýmis málefni Háskólans. Það er trú Öskru! að opin og lýðræðisleg umræða skipti gríðarlegu máli í háskólasamfélaginu.
