Frír matur á hverjum laugardegi
28/1/10 • Flokkur: ViðburðirFood not bombs gefur gestum og gangandi ljúffengan mat á hverjum laugardegi kl.14 á Lækjartorgi. Upplagt er að fá sér hollan matarbita sem beint er gegn offramleiðslu og ofurvaldi matvöruverslana. Aðstoð við matlagninguna er líka vel þegin frá þeim sem sjá sér það fært.
Food not bombs trúir því að „hungur og fátækt séu ekki nauðsynleg, sér í lagi ekki í samfélagi sem hendir svo miklu af fullkomlega óskemmdum mat vegna viðskiptahagsmuna“. Þetta er gert sem „leið til mótmæla og til þess að vekja athygli á þeim vandamálum sem fylgja sóun og ósanngjarnri dreifingu matar í samfélaginu“.

