Svartsokka

hlutdrægni við mótlæga fréttamennsku

COP15 fyrirlestur

12/10/09 • Flokkur: Viðburðir

Öskra! kynnir – COP15: Reclaiming power from below – mánudaginn 12.októberCOP15
kl.16 í stofu 102 í Lögbergi.

COP-15 loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna fer fram í Kaupmannahöfn 7 -
18 desember nk. þar sem svokallaðir þjóðarleiðtogar heimsins og
forsvarsmenn stórfyrirtækja ætla sér að ,,leysa“ loftslagsvandann með
lausnum á borð við kaup og sölu á mengunarkvótum, einkavæðingu vatns og
skóglendis – allt eftir uppskrift kapítalismans. Þar verður almenningi
talið í trú um að lausnin felist í grænum kapítalisma og að þau “lífsgæði”
sem við búum við þurfi alls ekkert að dvína, heldur einungis grænka.

Kaupmannahöfn verður suðupottur hugmynda og aðgerða, bæði af hálfu
yfirvalda en einnig frá okkur fólkinu sjálfu. Þær lausnir sem ráðamenn og
stofnanir vinna að eru ekki raunverulegar lausnir því þær miða allar að
viðhaldi á ósjálfbæru kapítalísku hagkerfi. Ýmsir hópar og einstaklingar
munu koma saman í Kaupmannahöfn og skapa vettvang þar sem við fólkið
hættum að vera neytendur að opinberum stefnum og endurheimtum umhverfi
okkar. Öskra! verður með kynningu á COP-15 og nauðsynlegum aðgerðum gegn
umhverfisvandamálum og þeim félagslegu áhrifum sem þau leiða af sér.
Ætlunin er að kynna m.a. Climate Justice Action (CJA) og það
grasrótarstarf,hreyfingar og hugmyndir sem stefnt er til Kaupmannahafnar í
desemberverður. Kynningin fer fram mánudaginn 12.október kl.16 í stofu 102
í Lögbergi.

Merkimiðar: ,

Ekki hægt að gera athugasemd.