fimmtudagur, 29. júlí

Innskrá

Safn

COP 15 mótmæli

cop15gears Nú er vika í loftslagsráðstefnuna í Kaupmannahöfn og pólitíkusarnir eru nú þegar farnir að pússa látúnsbarkana til þess að geta flutt okkur einhvern fagurgalann um það hvernig allt verður allt í lagi, ef aðeins við treystum þeim og þeirra smjaðri og kaupum nóg af orkusparandi ljósaperum.

Á meðan sendir Svartsokka baráttukveðjur til allra þeirra sem eru farnir að undirbúa róttæk mótmæli á götum Kaupmannahafnar. Um leið vill hún benda þeim sem ekki ætla á staðinn á að skipuleggja samstöðumótmæli með félögum okkar erlendis.

Nánar: http://www.climate-justice-action.org/