Svartsokka

mótvægi við hlutdræga fréttamennsku

Þyrping 30.okt kl 17:00

29/10/09 • Flokkur: Viðburðir

ÞyrpingÞYRPING var haldin í allt sumar og í vetur verður ekkert gefið eftir. Á síðasta föstudegi hvers mánaðar í allan vetur getur þú gefið bílaiðnaðinum fingurinn með því að mæta á reiðhjólinu þínu á Lækjartorg klukkan 17:00 og tekið þátt hóphjólreið frá Lækjartorgi.

Einkabílar hafa aukist hlutfallslega síðustu 7 ár þrátt fyrir ítarlegar tilraunir til betri almenningssamgangna og hjólaleiða. Bílanotkun hér á landi er löngu kominn út fyrir öll heilsemismörk og hana þarf að stoppa. Það verður ekki gert með því að skylda fólk til að kaupa sér öðruvísi nagladekk, hækka vanskilagjöld eða láta lögguna sekta þá sem eru einir í bíl.

Við þurfum engin yfirvöld til að setja boð og bönn. Gerum þetta sjálf.

Merkimiðar: ,

Ekki hægt að gera athugasemd.