Svartsokka » samstaða

RVK9, nei ég meina Atenco12 frjáls ferða sinna
Þann 30. júní síðastliðinn var 12 pólitískum föngum í Mexíkó sleppt lausum eftir að hæstiréttur þar í landi úrskurðaði þá saklausa meðal annars af ákæru um skipulagt mannrán og uppþot í borginni San Salvador Atenco. Árið 2006 voru þeir dæmdir í allt frá 31 til 112 ára fangelsi í undirrétti en hæstiréttur sneri dómnum við og segir í dómsúrskurðinum að “yfirvöld byggja málið á röngum og veikum ágiskunum. Þau eru ákærð fyrir það eitt að hafa verið nálægt atburðinum.”

Atburðurinn sjálfur snerist hins vegar ekki um mannrán heldur baráttu bænda gegn ákvörðun yfirvalda um að leyfa niðurrif á helsta götumarkaði bæjarins og úthluta WalMart verslunarkeðjunni byggingarleyfi á lóðinni. Markaðurinn sem um ræðir nefnist Belisario Domguez og er í bænum Texcoco um 25 km frá Mexíkóborg. Í Mexíkó er rík hefð er fyrir götumörkuðum (Tianguis) sem er stjórnað af íbúum hvers svæðis fyrir sig og má rekja tilvist þessara markaða allt aftur til tíma Asteka. Bændur selja þar afurðir sínar og handverksfólk selur handgerða listmuni en hvort tveggja er þáttur í að viðhalda þeirri menningu sem ríkir á svæðinu.

Þann 3.maí 2006 mættu u.þ.b. 60 blómabændur og settu upp söluborð við markaðinn. Eftir að hafa neitað að hlýða fyrirmælum lögreglu og yfirgefa svæðið voru þeir beittir alvarlegu ofbeldi af hálfu lögreglunnar. Í kjölfarið slógust fleiri bændur í hópinn frá nágrannabænum Atenco og settu þeir upp götuvirki í helstu götu bæjarins til að hindra för lögreglu. Fréttirnar bárust á milli eins og eldur í sinu því meðal blómabændanna voru meðlimir FPDT (People’s Front in Defense of the Land) sem lengi höfðu barist gegn byggingu alþjóðlegs flugvallar fyrir Mexíkóborg á landi íbúa San Salvador Atenco. Tugir særðust í átökunum og einn lét lífið en þeim lauk með því að íbúum tókst að hrekja lögreglu á brott.

Það var ekki fyrr en morguninn eftir sem hörmungarnar hófust. Þann morgunn, klukkan 6:30, þrömmuðu rúmlega 3000 lögregluþjónar inn í Atenco og gengu berserksgang um allt sem varð á vegi þeirra. Lögreglan skaut táragashylkjum í höfuð fólks á stuttu færi, braut niður hurðir og dró fólk úr rúmum sínum og út á götur. Ein þeirra var talsmaður mannréttindasamtaka sem hafði talað fyrir opnum tjöldum á degi verkalýðsins 1.maí í Mexíkóborg, og sparkaði hópur lögregluþjóna síendurtekið í klofið á henni. Fréttamenn á svæðinu voru einnig handteknir og síðar lamdir með kylfum meðan þeir sátu í varðhaldi. Óskað var eftir aðstoð frá Rauða krossinum í nærliggjandi borgum en þegar starfsmenn hans komu á svæðið var þeim meinaður aðgangur af lögreglu.

Talið er að allt að þrjúhundruð manns hafi verið handteknir þann dag en lögreglan nefnir aðeins 109 í sínum skýrslum. Af þeim voru 47 konur og þrjátíu þeirra var nauðgað í varðhaldi. Að sögn eins fórnarlambs lögregluofbeldisins tók það sex klukkustundir fyrir lögreglu að flytja þau í varðhald en venjulega tekur aðeins tvær klukkustundir að keyra þá leið. Á leiðinni voru þau látin liggja í blóðpolli félaga sinna og konum nauðgað ítrekað. Enn hafa 18 einstaklingar ekki fundist eftir innrás lögreglunnar og 14 ára drengur var skotinn í brjóstkassann af stuttu færi með haglabyssu. Tvær stærstu fjölmiðlasamsteypur landsins höfnuðu óskum mótmælenda um viðtöl en tóku hinsvegar við frétttilkynningu lögreglunnar og birtu hana.

Fyrr á árinu höfðu borgarbúar haldið fulltrúum Menntamálaráðs fylkisins í fundarherbergi eftir að yfirmaður menntamála í fylkinu hafði ítrekað hunsað ósk borgarbúa um fund vegna vanrækslu í menntamálum í borginni. Þeim var þó sleppt nokkrum tímum síðar ómeiddum. Fjölmiðlar blésu upp atvikið og varð mannrán rauði þráðurinn í gegnum frásögnina frá átökunum í Atenco en mannrán eru tíð í Mexíkó og hræðsla mikil meðal almennings. Þetta birti gríðarlega ranga mynd af atburðinum og dró úr mögulegri samstöðu innanlands.

Mannréttindaráð Mexíkó (CNDH) hrinti af stað rannsókn sem stóð yfir í fimm mánuði og lýsti átökunum sem hörmungum yfir íbúum Atenco. Borgar- og alríkislögreglan hefði misnotað vald sitt og skotvopn. Í skýrslunni kemur einnig fram að:

* 207 manns (þar af 10 undir lögaldri) urðu fyrir grimmilegri, ómannúðlegri og niðurlægjandi meðferð.

* 145 manns voru handteknir með ólögmætum hætti

* 26 konum sem voru í varðhaldi var nauðgað af lögreglumönnum

* 5 einstaklingar með erlent ríkisfang voru beittir ofbeldi og sendir ólöglega úr landi

Að þessu frátöldu sagði Mannréttindaráðið að lögreglan hafi brotist inn á heimili, brotið þar allt og bramlað, rænt verðmætum, dregið fólk úr rúmum sínum og misþyrmt börnum, eldra fólki og fötluðum. Átökunum lauk með handtöku 12 manns sem voru ákærð fyrir skipulagt mannrán á starfsmönnum menntamálaráðs fyrr á árinu og þátttöku sína í mótmælunum í Atenco þann 3.maí. Þau voru dæmd í 31 – 112 ára fangelsi. Dómnum var áfrýjað til hæstaréttar landsins sem felldi hann niður og sagði að sönnunargögn gegn þeim væru ólögmæt. “Þó fólkinu hafi verið haldið í stuttan tíma er ekki hægt að skilgreina það sem skipulagt mannrán.”, sagði Juan Silva Meza, einn hæstaréttardómaranna í málinu. Hann sagði einnig að “þetta [liti] út fyrir að vera tilraun til að gera almenn mótmæli að glæpsamlegu athæfi”.

Enn hefur lögreglan ekki þurft að svara fyrir það ofbeldi sem hún beitti gegn þúsunda friðsamra íbúa bæjarins og enginn lögregluþjónn hefur verið dæmdur fyrir þátttöku sína í aðgerðinni.

Yfirvöld í Mexíkó eru ekki þau einu sem reyna að svipta borgara frelsi sínu til lífstíðar vegna pólitískra skoðana þeirra og aðferðum við að láta þær í ljós. Eins og flestir hafa eflaust tekið eftir í fjölmiðlum undanfarna mánuði þá reynir skrifstofa Alþingis og íslenskt ákæruvald að feta í fótspor héraðsdómstóls Mexíkófylkis með því að kæra 9 einstaklinga fyrir árás á Alþingi með möguleika á lífstíðardómi.

Ætlun Svartsokku er ekki að setja samasem merki milli atburðanna tveggja en eftirmálarnir eru hinsvegar nákvæmlega eins. Stjórnvöld* velja nokkra einstaklinga úr hópi þúsunda og gera tilraun til að fjarlægja þá úr samfélaginu með því að bera upp á þá sakir sem standast ekki skoðun og tengist athæfinu ekki á nokkurn hátt.

Skýringar á framferði lögreglunnar í Atenco hinn 4.maí 2006 eru djúpstæðari en svo að einungis hafi verið um að ræða ofbeldisfullar löggur sem komist upp með glæpi vegna spillingar í samfélaginu. Líklegt þykir að þessar misþyrmingar lögreglu hafi verið fyrirskipaðar af stjórnvöldum sem liður í úthugsuðum aðgerðum gegn pólitískum andstæðingum ríkisstjórnarinnar. Aðilar tengdir FPDT hreyfingunni, sem á var minnst hér að ofan, hröktu bæjarstjóra Atenco á brott árið 2002 og náðu bænum á sitt vald við það. Með því minnkuðu snarlega völd ríkisstjórnarinnar yfir bænum, sem er staðsettur í útjarði Mexíkóborgar, en í öðru fylki. Áætlanir þáverandi forseta landsins, Vicente Fox, um að um að starfrækja þar alþjóðlegan flugvöll mætti því harðri andspyrnu. Einnig hafa tengsl FPDT og Zapatista hreyfingarinnar, EZLN, haft sitt að segja. En EZLN náði fylkinu Chiapas í suðurhluta landsins á sitt vald árið 1994 í baráttu sinni fyrir réttindum frumbyggja og hefur haldið sjálfstjórn þar síðan. Nokkuð ljóst er að stjórnvöld hafa tekið þá ákvörðun að láta ekki annað Chiapas eiga sér stað í bakgarði Mexíkóborgar.

* Í tilfellinu á Íslandi var það skrifstofa alþingis sem kærði en vegna   meints þrýstings frá forseta alþingis.

Skófla er alltaf skófla, kúgun er kúgun
Sokku barst eftirfarandi tilkynning:

Skófla er skófla, kúgun er kúgun

Umhverfishreyfingin Saving Iceland lýsir yfir fullri samstöðu með sakborningunum níu í Reykjavík (RVK9), sem eiga á hættu allt frá eins árs til sextán ára fangelsisvist fyrir að nýta lýðræðislegan rétt sinn til að mótmæla skammarlegu þjóðþingi, 8. desember 2008.

Þessir níumenningar hafa verið valdir úr þeim þúsundum manna sem felldu fyrri ríkisstjórn með mótmælum sínum, ríkisstjórn sem vegna spillingar og getuleysis bar ábyrgð á þeirri sögulegu kreppu sem enn þjakar íslenskt samfélag. Skýrsla hinnar sérstöku rannsóknarnefndar (SIC – viðeigandi skammstöfun) hefur nú staðfest að þessi ríkisstjórn lék lykilhlutverk í þeirri valdníðslu sem hafði í för með sér algjört hrun hins íslenska hagkerfis og var lykilafl í þeirri alvarlegu spillingu, lýðræðisbresti og siðferðiskreppu sem síðan hefur komið í ljós að voru duldar orsakir hins algjöra lánleysis íslensks lýðræðis.

Að stimpla pólitíska andstæðinga sem glæpamenn, jafnvel þá sem beita ofbeldislausri, borgaralegri óhlýðni, er gömul aðferð til að afvegaleiða, notuð af kúgunarríkjum um allan heim. Þessi pólitíska kúgunaraðgerð er í æpandi mótsögn við hræsnisfullar yfirlýsingar um að ‘axla ábyrgð’ og ‘læra af reynslunni’ sem flokkarnir sem bera ábyrgð á kreppunni hafa gefið. Svo sagan endurtaki sig ekki, ættu Íslendingar að taka mjög alvarlega þá kerfisbundnu misbeitingu valds sem hefur orðið uppvíst að er rótföst í valdakerfinu og ekki láta beina sök þeirra að níumenningunum og öðrum mótmælahreyfingum.

Enn sem komið er hefur ekki einn einasti einstaklingur úr stjórnmálum eða viðskiptalífi verið dreginn fyrir dómstóla, þó að margir þeirra hafi frá öllum hliðum verið tilnefndir sem sökudólgar kreppunnar. Sú staðreynd að hinir ungu níumenningar séu fyrstu einstaklingarnir fyrir rétti í kjölfar kreppunnar sýnir svo ekki verður um villst það andrúmsloft afneitunar sem nú gegnsýrir íslenskt samfélag, og hneykslanlega tregðu íslenska ríkisins og stjórnmálastéttarinnar til að taka á sig ábyrgð eða draga lærdóma af orsökum kreppunnar.

Málaferlin gegn níumenninngunum eru blygðunarlaus afvegaleiðsla sem framkvæmd er af algerlega ábyrgðarlausu valdakerfi í fullkominni afneitun gagnvart þeim smánarlegu aðstæðum sem íslenskt lýðræði er nú komið í. Við horfum upp á kerfi sem rúið er trausti reyna að búa til sökudólga úr fólki fyrir að mótmæla þingi sem hefur verið einum rómi fordæmt fyrir að vera spillt, getulaust og vanhæft. Saving Iceland spyr hvort íslenska ríkið muni endurheimta nokkra virðingu fyrir stofnunum þess, sér í lagi þegar það legst á eitt með leggja í rúst líf þessara níu einstaklinga og fjölskyldna þeirra?

Alvarlegir misbrestir í íslensku samfélagi eru engar nýjar fréttir fyrir Saving Iceland hreyfinguna. Þegar íslenskt samfélag var í heljarklóm þeirrar ofsagræðgi sem leiddi til hrunsins vorum við meðal þeirra sárafáu sem stigu fram til að afhjúpa þróuninna og stemma stigu við henni. Af því leiddi bæði óhróðursherferðir í fjölmiðlum og pólitískar ofsóknir af hálfu dómstóla og lögreglu.

Núverandi ‘vinstristjórn’ heldur ekki einungis áfram hinni pólitísku kúgun, heldur eykur hana verulega. Nú hyggur ríkið á hefndir með þungum fangelsisdómum.  Það er í hefndarskyni fyrir það sem í raun var einungis sakleysisleg og ofbeldislaus borgaraleg óhlýðni. Hin dulda réttlæting þessarar kúgunar er sú að hindra frekari borgaralega óhlýðni.

Saving Iceland vill vekja tafarlausa athygli alþjóðlegra mannréttinda- og borgararéttindasamtaka á þessari árás á lögfest réttindi mótmælenda á Íslandi. Þau réttindi eru lögfest bæði í stjórnarskrá og alþjóðlega.

Jafnvel þó að menn hafi nýlega komist að því að skrifstofa alþingis ber ábyrgð á málsókn og ákærum gegn níumenningunum, hefur forseti þingsins haldið því fram að málið sé komið úr höndum löggjafarvaldsins og komið í ‘öruggar’ hendur dómsvaldsins. Hvílík kaldhæðni! Á Íslandi er ekki að finna skýr mörk á milli dómsvalds og ríkisvalds. Enn er það svo að íslenskir dómstólar (héraðsdómur og hæstiréttur) hafa kerfisbundið verið byggðir upp af klíkulimum Sjálfstæðisflokksins. Þetta er í samræmi við hinar tíðu ásakanir um að Ísland sé ekkert annað en ‘bananalýðveldi’. Dómskerfið á Íslandi er nákvæmlega jafn ótrúverðugt og pólitíska kerfið og fjármálageirinn.

Maður hlýtur að álykta að óreiðunni sem hingað til hefur fylgt málflutningnum í máli níumenninganna, þar sem jafnvel hefur komið til uppþota, hafi verið leyft að magnast svo mjög vegna þess að það sé hluti af meðvitaðri og kaldrifjaðri tilraun kerfisins til að skapa pólitískann óstöðugleika í kringum málið og auk þess neikvæða mynd af hinum ákærðu. Ítrekaðir dómgreindarbrestir dómarans virðast staðfesta þennann grun, þeir hafa sífellt aukið spennuna og bætt í farsakennt inntak réttarhaldanna.

Þetta sést greinilega á því hvernig fjölmiðlar, sem enn er stýrt nánast eingöngu af nýfrjálshyggjuöflum, hafa stöðugt kynnt málið. Íslenskir fjölmiðlar hafa ítrekað kallað eftir þungum dómum yfir hinum ákærðu og jafnan lýst yfir augljósri sekt þeirra. Þetta hefur gengið svo langt að Ragnar Aðalsteinsson hefur lýst yfir því að níumenningarnir eigi enga möguleika á sanngjörnum réttarhöldum.

Þegar Ríkisútvarpið um síðir fékk aðgang að og sýndi öryggisupptökur af því þegar sakborningar fóru inn í þinghúsið varð augljóst að ákærurnar um ofbeldi og líkamsmeiðingar gegn starfsfólki þingsins voru með öllu tilhæfulausar.

Ein meginröksemdin sem íslenskir fjölmiðlar hafa borið fram gegn hinum ákærðu var að þeir hefðu innleitt ofbeldi í íslenskar mótmælaaðgerðir og því þyrfti að taka á þeim af festu. Þrátt fyrir mikið vægi málsins þögðu þessir sömu refsiglöðu fjölmiðlar sem fastast þegar Ríkissjónvarpið bar fram óhrekjanleg gögn sem sýna að ofbeldisákærurnar byggjast á hreinum lygum. Þetta er æpandi dæmi um tregðu íslenskra fjölmiðla (sem Rannsóknarnefnd Alþingis setti alvarlega ofan í við fyrir að vera viljugir þjónar þeirra sem báru ábyrgð á kreppunni) til að læra sína lexíu og og axla ábyrgð sína fyrir að hafa vanrækt siðareglur blaðamennskunnar og lýðræðisskyldur sínar árum saman.

Við viljum einnig vekja athygli á þeim hefndarhug sem felst í ákærunum á hendur níumenningunum. Hann styrkist við þá staðreynd að Samfylkingin, sem á að heita flokkur vinstra megin við miðju og leiðir nú ríkisstjórnina, deildi völdum með Sjálfstæðisflokknum í þeirri ríkisstjórn sem mótmælahreyfingin hrakti frá völdum.  Innan núverandi ‘vinstristjórnar’ er hefndarhug þessara tveggja flokka friðþægt með því að halda til streitu ákærunum gegn níumenningunum.

Augljóst er að Vinstri grænir, sem komust til valda fyrir tilstilli mótmælahreyfingarinnar og deila nú völdum með Samfylkingunni, munu ekki af neinni alvöru þrýsta á samstarfsflokk sinn um að draga ákærurnar til baka. Svo virðist sem fórna eigi mótmælendunum til þess að friða þá sem engjast í hinu alþjóðlega sviðsljósi fyrir ábyrgð sína á kreppunni. Þetta eru fullkomin svik við kröfuna um virkara lýðræði og siðlegri stjórnmál sem fleytti Vinstri grænum til valda árið 2009.

Saving Iceland ítrekar yfirlýsingu sína um fullkomna samstöðu með níumenningunum og fjölskyldum þeirra. Einstaklingar innan Saving Iceland hreyfingarinnar þekkja ágætlega tilfinninguna sem fylgir því að vera glæpgerður og dreginn í gegnum réttarsali fyrir uppblásnar eða vísvitandi falsaðar ákærur fyrir að taka þátt í ofbeldislausri, borgaralegri óhlýðni. Við höfum lært að það er eitt af duldum markmiðum ríkisins að beita slíkum réttarhöldum til þess að rústa lífi okkar og ástvina okkar með því að kasta skugga á framtíð okkar. Þetta er meðvituð og kerfisbundin aðferð sem miðar að því að kæfa raddir okkar og draga úr okkur kjark. Það skiptir öllu að samfélagið átti sig á að eðli þessarar ríkisreknu aðferðar, að ofsækja pólitíska andstæðinga með glæpastimplun, sé svo sannarlega kaldrifjað pólitískt kúgunartæki.

Aðgerðir níumenninganna gegn Alþingi Íslendinga 8. desember 2008 gengdu mikilvægu hlutverki í að herða á mótmælum almennings gegn spilltri ríkisstjórn og stuðluðu verulega að falli hennar. Þessi staðreynd ein og sér ætti að sannfæra Íslendinga um að þeir ættu að vera þakklátir fyrir það hugrekki sem níumenningarnir sýndu, að þeir ættu að taka afstöðu gegn því að níumenningarnir séu dregin í gegnum langdregin réttarhöld og fái hugsanlega fangelsisdóma. Því skorum við á Íslendinga að styðja hina ákærðu með ráðum og dáð og stöðva það svívirðilega réttarofbeldi sem felst í þessu máli.

Saving Iceland mælist til þess einnig að alþjóðasamfélagið og samtök á vettvangi borgararéttinda og mannréttinda taki málið þegar í stað til rannsóknar og grípi til aðgerða sem fyrst til þess að stöðva þessar pólitísku ofsóknir.

Saving Iceland krefst þess að lokum að ákærur gegn níumenningunum séu þegar í stað dregnar til baka, og ennfremur, að Alþingi og íslenska ríkið sendi frá sér opinberar afsökunarbeiðnir til sakborninga og fjölskyldna þeirra fyrir þessa hreinræktuðu pólitísku kúgunaraðgerð.

English version:

http://www.savingiceland.org/0629/a-spade-is-a-spade-repression-is-repression/

Svartir sokkar í Brussel
Sokksvörtungar finnast á víð og dreif um heiminn og um daginn barst sokkunni tilkynning frá Brussel. Myndskeið fylgir.

COP 15 mótmæli
Nú er vika í loftslagsráðstefnuna í Kaupmannahöfn og pólitíkusarnir eru nú þegar farnir að pússa látúnsbarkana til þess að geta flutt okkur einhvern fagurgalann um það hvernig allt verður allt í lagi, ef aðeins við treystum þeim og þeirra smjaðri og kaupum nóg af orkusparandi ljósaperum.

Á meðan sendir Svartsokka baráttukveðjur til allra þeirra sem eru farnir að undirbúa róttæk mótmæli á götum Kaupmannahafnar. Um leið vill hún benda þeim sem ekki ætla á staðinn á að skipuleggja samstöðumótmæli með félögum okkar erlendis.

Nánar: http://www.climate-justice-action.org/

Hættum að væla
Nú er rúmlega ár liðið frá upphafi „kreppunnar“ og allir virðast búnir að gleyma þeirri gagnrýni sem þá fór fram á nýfrjálshyggjuna og allt henni fylgjandi. Flestir virðast enn fastir í þeirri trú að Ísland sé einhvers konar einstakt tilfelli og er almennt talað á þann hátt að halda mætti að Ísland sé fyrsta og eina landið til að lenda í efnahagserfiðleikum.

Líkt og heyra mátti í frétt ljósvakamiðlanna fyrir nokkru þar sem sagt var í sorgartón að lánshæfismat landsins væri hið lægsta “þróaðra ríkja” hefur hroki landsmanna lítið minnkað. Vegna þess að heiminum hefur verið skipt í tvo hluta; þróuð lönd og vanþróuð, hefur þeirri hugmynd verið troðið inn í hugskot okkar að Íslendingar séu á einhvern þróunarfræðilegan hátt æðri suðrænum þjóðum. Um leið er okkur talin trú um það að við getum ekki lært neitt af þeim, né brotið odd af oflæti okkar og sameinast þeim í baráttu gegn nýfrjálshyggju og yfirráðastefnu stórfyrirtækja.

Alls staðar þar sem skuldir þjóða hafa vaxið þeim yfir höfuð er sagan sú sama: Almenningur neyðist til að borga skuldir einræðisherra, auðmanna og stríðsherra. Nánast öll lönd á suðurhveli jarðar hafa lent í sambærilegum vandræðum og Ísland, venjulega í kjölfar þess að efnahagskerfi nýfrjálshyggjunnar var troðið upp á þau. Víðast hvar átti það sér stað með skilyrtum lánum frá Alþjóðagjaldeyris- sjóðnum og ráðleggingum „sérfræðinga“ en sums staðar var það gert á blóðugri hátt.

Hinn ríkari hluti heims hefur hingað til nýtt sér þann valdamismun sem er ávallt til staðar milli þeirra sem eiga peninga og þeirra sem eiga þá ekki til þess að móta efnahagskerfi fátækari landi í sinn eigin hag. Ísland tilheyrir (eða tilheyrði) þeim hluta heimsins sem hagnaðist á ójöfnum viðskiptaháttum milli ríkra og fátækra landa. Þegar ójafnar leikreglur milli ríkra og fátækra koma svo í bakið á okkur vælum við endalaust yfir því að það sé „ekki verið að gera neitt fyrir okkur“ í stað þess að gera eitthvað í því að breyta kerfinu.

Auðvitað er ömurlegt að almenningur þurfi að borga skuldir útrásarfíflanna, auðvitað er niðurskurður ömurlegur en svona virkar heimurinn gott fólk. Svona virkar kapítalismi, svona virkar nýfrjálshyggja, svona virkar AGS, svona virka stórfyrirtæki, bankar, ríkisstjórnir, lögin. Svona virkar EES og líka ESB. Ef við ætlum okkur að gera eitthvað í þessu er ekki nóg að væla bara um það „að ríkisstjórnin sé ekki að gera neitt fyrir heimilin og fyrirtækin í landinu“ heldur þurfum við að breyta heiminum eins og hann leggur sig. Við þurfum að horfa lengra en að næsta húsnæðisskuldabréfi og bílaláni og líta á veröldina í kring um okkur. Við þurfum að horfa á alþjóðlega baráttu fólks sem hefur verið að vinna þrautarlaust að því í fjöldamörg ár að breyta heiminum og við þurfum að taka þátt í henni.

Samstaða gegn aðskilnaðarmúrnum
Aktívistar í Palestínu tóku sig til sl. mánudag og rifu hluta af aðskilnaðarmúrsins sem byggður hefur verið milli Ísraels og Vesturbakkans í Palestínu. Um 150 manns tóku þátt í aðgerðinni. Múrinn var rifinn nálægt borginni Ramallah. Eftir stutt átök milli ísraelskra hermanna og aðgerðasinnanna náði herinn að dreifa hópnum með táragasi.

Mánudagurinn markaði upphaf samstöðuviku gegn aðskilnaðarmúrnum, sem er enn ein til raun Ísraela til að einangra palestínsku þjóðina og gera líf Palestínumanna illmögulegt. Víða lokar múrinn á möguleika fólks til að sjá sér farboða, þar sem mikið af ræktarlandi í Palestínu lendir hinum megin við múrinn. Múrinn er því notaður til þess að taka enn meira landsvæði af Palestínumönnum, en þess má geta að á milli hans og ísraelsku landamæranna eru um einn tíundi alls lands á Vesturbakkanum og um 35.000 Palestínumenn búa „vitlausu megin“ við múrinn, það er í einhvers konar einskis manns landi á milli hans og ísraelsku landamæranna. Stærð landsins sem lendir Ísraelsmegin við múrinn segir heldur ekki alla söguna því oft er um gott ræktunarland að ræða og landið er tekið með hagsmuni ísraelskra landtökubyggða í huga.

Aðskilnaðarmúrinn var byggður undir því yfirskini að vera „öryggisráðstöfun“, með það að leiðarljósi að loka meinta hryðjuverkamenn öðrum megin múrsins. Hann er því einstaklega augljóst dæmi um þær aðferðir sem stjórnvöld grípa til í þeim tilgangi að tryggja „öryggi“, en það er að loka fólk frá hvoru öðru, svelta það, einangra og koma í veg fyrir að nokkurs konar samræður eða samstaða geti átt sér stað. Í stað þess að reyna að stuðla að betri aðstæðum fólks og gera því kleift að lifa mannsæmandi lífi er allt gert til þess að sundra því með hræðlsuáróðri og lygum. Það versta sem við getum gert er að trúa lygunum og hræðast það fólk sem reiðist yfir ranglæti og heimsku. SAMSTAÐA GEGN AÐSKILNAÐARMÚRNUM!

Hér má sjá myndband af aðgerðinni á mánudaginn:

<object style="height: 344px; width: 425px;" classid="clsid:d27cdb6e-ae6d-11cf-96b8-444553540000" width="100" height="100" codebase="http://download.macromedia.com/pub/shockwave/cabs/flash/swflash.cab#version=6,0,40,0"><param value="http://www.youtube.com/v/Z6vt3evW3Wk" /><param name="allowFullScreen" value="true" /><param name="allowScriptAccess" value="always" /><param name="src" value="http://www.youtube.com/v/Z6vt3evW3Wk" /><param name="allowfullscreen" value="true" /><embed style="height: 344px; width: 425px;" type="application/x-shockwave-flash" width="100" height="100" src="http://www.youtube.com/v/Z6vt3evW3Wk" allowscriptaccess="always" allowfullscreen="true"></embed></object>

Samstaða með stúdentum
Undanfarið hafa borist fréttir víða að um baráttu stúdenta gegn markaðsvæðingu menntunar. Til að mynda hafa nemendur nokkurra háskóla í Austurríki tekið yfir fyrirlestrarsali til þss að berjast fyrir ókeypis og frjálsri menntun fyrir alla og gegn síaukinni markaðsvæðingu menntunar. Í september var nemendum Central Universiy of Ecuador mætt með lögregluofbeldi er þeir fóru í mótmælagöngu til þess að krefjast áframhaldandi ókeypis menntunar. Menntun er ókeypis samkvæmt stjórnarskrá Ekvador en til stendur að breyta því, sem hefur verið mótmælt harkalega af stúdentum við skólann. Í London hafa einnig verið haldin fjöldamörg mótmæli gegn markaðsvæðingu háskóla. Fleiri sambærileg dæmi má nálgast hér.

En hvers vegna eru stúdentar að berjast gegn markaðsvæðingu menntunar? Er ekki bara fínt að einhver fyrirtæki séu tilbúin til að borga fyrir fína skjávarpa og upphituð strætóskýli?

Hér á landi hefur lítil gagnrýnin umræða farið fram um markaðsvæðingu menntunar. Það er kannski ekki síst vegna þess að það er svo góðri dúsu stungið upp í fólk þegar kemur að henni; með markaðsvæðingu er hægt að kenna fleiri kúrsa, við fáum ódýran bjór, það eru flottari fyrirlestrarsalir til staðar, nemendafélögin hafa efni á strippurum í partíin, rassinn frýs ekki af okkur meðan við bíðum eftir strætó, við verðum öll heilalausar bikkjur.

En hvað kostar markaðsvæðingin stóran hluta af gagnrýnni hugsun? Hvernig eiga kennarar að gagnrýna stórfyrirtæki ef þau borga launin þeirra? Hvernig er hægt að ástunda gagnrýna hugsun gegn aðilum sem styrkja menntunina sem á að ýta undir þessa gagnrýni? Hvernig geta stúdentar gagnrýnt mannréttindabrot Rio Tinto á sama tíma og stúdentablaðið tekur við styrkjum frá því? Hvernig geta stúdentar auglýst Goldfinger[1] og á sama tíma gagnrýnt sölu á mannslíkömum? Geta kennarar fengið launaávísun sína frá Landsvirkjun og fjallað um fyrirtækið á hlutlausan eða gagnrýninn hátt?

Það eru nánast allir sammála um það að eigendur fjölmiðla hafi áhrif á það hvernig fréttaflutningur er framkvæmdur. Hvernig geta nemendur og stúdentaráð gleypt við því að markaðsvæðing innan háskólans geti ekki haft áhrif á það hvernig menntun við fáum – og þar af leiðandi á hvernig við hugsum?

Dæmi um andóf gegn markaðsvæðingu innan HÍ:

[1] Auglýsingar frá Goldfinger hafa á undanförnum árum birst í blöðum nokkurra nemendafélaga við HÍ.