Svartsokka » dómsmál

Binayak Sen, læknir og aktívisti
Indverski læknirinn og aktívistinn, Binayak Sen, var dæmdur í lífstíðarfangelsi í desember vegna meints sambands hans við uppreisnarhópa Maóista sem vilja koma ríkisstjórninni frá. Binayak Sen var handtekinn í maí árið 2007 af Chattisgarh lögreglunni fyrir brot á sérstökum lögum um öryggi almennings frá árinu 2005 og Unlawful Activities (Prevention) Act frá árinu 1967. Að sögn Sen eru yfirvöld að þagga niður í honum vegna gagnrýni hans á Salwa Judum, sjálfskipaðar lögreglusveitir sem hafa staðið fyrir fjöldamorðum á íbúum þorpa frumbyggja til að rýma fyrir báxít- og demantavinnslu stórfyrirtækja.

“In Chhattisgarh, the PUCL [Peoples’ Union for Civil Liberties] has been in the forefront of exposing the atrocities of the police. Atrocities by men in uniform against vulnerable sections continue to be a serious problem in the state.”

Lögreglusveitirnar eru studdar af yfirvöldum og er yfirlýst hlutverk þeirra að brjóta niður uppreisnarhópa Maóista sem kallast Naxalites. Lögreglusveitin hefur hinsvegar verið uppvís að því að beita hryðjuverkum gegn fólki í skjóli valds síns. Yfirvöld settu hópinn á laggirnar árið 2005 til að uppræta Naxalíta hvar sem þá væri að finna. Þessar umdeildu lögreglusveitir voru settar á laggirnar á afar „heppilegum“ tímapunkti því yfirvöld hafa lofað yfir 85 milljarða dollara fjárfestingum í héruðunum Chhattisgarh, Orissa, Jharkhand, Karnataka, og Maharashtra. Landsvæðin eru stór og bestu báxítfjöll heims er þar að finna en einnig fjölda Adivasi frumbyggja sem hafa sitt lífsviðurværi af landinu.

“However, an investigation led by the PUCL and involving several other Human Rights organizations revealed that it was in reality a state sponsored and state funded as well as completely unaccountable vigilante force, to which arms were provided by the government. The activities of the Salwa Judum have led to the emptying of more than 600 villages, and the forced displacement of over 60,000 people. Concerns regarding the activities of the Salwa Judum have been expressed by several independent organizations including the National Human Rights Commission. International organizations like the UNICEF have also voiced serious concern and have invited me to dialogue with them about the restoration of normalcy in the region affected by Salwa Judum.”

Sen, sem er menntaður barnalæknir, lítur ekki aðeins á sig sem lækni heldur einnig sem aktívista og segir hann að nauðsynlegur þáttur starfsins sé að fræða frumbyggja um borgaraleg réttindi sín. Samtökin MFC (Medico Friend Circle) voru stofnuð í lok 7. áratugarins með það markmið að efla samvinnuheilsugæslu í Chattisgarh. Lítil áhersla á uppbyggingu heilbrigðiskerfis er þáttur í stefnumótun stjórnvalda og auðlæknanlegir sjúkdómar tengdir fátækt eru afurðir hennar. Samkvæmt Alþjóðabankanum þá lifa um 80% Indverja á minna en 2 dollurum á dag.

MFC hrintu í framkvæmd samvinnu-heilsugæslu í Chattisgarh stuttu eftir að Sen kom þangað árið 1981.  Hann vann með Adivasi frumbyggjum í að þróa eigin heilsugæslu. Íbúar fengu þjálfun sem 1.stigs hjúkrunarfræðingar og í stað þess að styðjast við vestræn læknavísindi var horfið aftur til að nýta þekkingu og hefðbundin lyf frá héraðinu. Þetta var verkefni fólksins og voru allir hvattir til að læra undirstöðuatriðin í hjúkrun.

„During the two years I worked there [a field based health programme at the Friends Rural Centre, Rasulia in Hoshangabad, MP.], I worked intensively in the diagnosis and treatment of Tuberculosis and understood many of the social and economic causes of disease. I was also strongly influenced by the work of Marjorie Sykes, the biographer of Mahatma Gandhi, who lived at the Rasulia centre at that time.”

Mikill skortur var þó á betri aðstöðu til að lækna berklasjúklinga. Meðlimir í stéttarfélagi námuverkamanna, Chattisgarh Mines Shramik Sangatan (CMSS), hófust handa við að byggja heilsugæslu sem myndi bæta aðhlynningu á berklasjúklingum en einnig bjóða upp á tækifæri fyrir fólk til að taka hjúkrunarfræðimenntun sína á næsta stig. Leiðtogi CMSS, Shankar Guha Niyogi, var síðar handtekinn fyrir „uppreisnina“ sem fólst í byggingu heilsugæslu án aðkomu ríkisins.

Binayak Sen og eiginkona hans, Ilina, tóku við þar sem frá var horfið á heilsugæslunni í Chattisgarh. Bygging virkjanna hafði drekkt stórum landsvæðum og fjöldi ættbálka hafði misst landsvæði sín og lífsviðurværi í kjölfarið. Hugmyndafræði Binayak byggir á þeirri skoðun hans að heilbrigðisþjónusta er pólitísk í eðli sínu. Með því að bjóða upp á heilsugæslu og hjúkrunarnám til íbúa svæðisins er verið að vinna á ákveðnum umbótum á kerfi sem ekki má hreyfa við og þ.a.l. verið að upphefja byltingarkenndar hugmyndir. Með því að veita menntun til verkalýðsins er vissulega verið að ógna stigveldinu sem ríkið byggir á.

Aukin umræða um mannréttindi frumbyggja urðu óhjákvæmilegur þáttur í hugmyndum um breytta heilsugæslu. Í héraði eins og Chattisgarh þar sem yfirvöld stunda gífurleg hryðjuverk á innfæddum í skjóli baráttu sinnar gegn uppreisnarherjum Maóista hefur landi verið rænt af íbúum og afhent einkareknum iðnaðarfyrirtækjum.

Binayak Sen er sakaður um að „hvetja til hernaðar“ gegn ríkinu og fyrir að tengjast uppreisnarhópi Maóista í landinu. Engar haldbærar sannanir hafa verið settar fram sem styðja við þessar ásakanir annað en eitt skjal sem skyndilega birtist í réttarsalnum. Einnig var lagt hald á tölvu Sen sem svo fékk hana tilbaka án fjölda myndskeiða sem hann hafði tekið við þolendur ofbeldis af hálfu lögreglusveitanna.  Amnesty og önnur mannréttindasamtök hafa fordæmt dóminn og hvetja yfirvöld í Indlandi að fellar niður allar ákærur.

Sen er í haldi í borginni Chennai og hefur mannréttindasamtökum og stuðningsfólki Sen verið neitað af lögregluyfirvöldum að boða þar til friðsamlegra mótmæla þann 31. desember. Stúdentar, lögfræðingar, aðgerðarsinnar, þingmenn og læknar voru meðal þeirra sem límdu svartan borða fyrir munn sér til að mótmæla þögguninni sem á sér stað.

Útfrá sjónarhóli yfirvalda og markaðarins eru aðgerðir yfirvalda gegn Sen mjög skiljanlegar. Í ágúst á þessu ári unnu Adivasi frumbyggjar í héraðinu Orissa mikinn sigur gegn breska álrisanum Vedanta eftir áratuga baráttu, þrátt fyrir að mjög hafi á þá hallað fram að því. Námuvinnslan hefði valdið þjóðarmorði á 8000 frumbyggjum, mengað grunnvatn, breytt árfarvegum og tortímt tæplega 750 þúsund hektara skóglendi ásamt öllu vistkerfi þess. Salwa Judum málaliðar markaðsaflanna ásamt yfirvöldum eru markvisst að undirbúa héraðið fyrir frekari landtökur og senda með þessum dómi sterk skilaboð til þeirra sem ætla sér að opna munninn og gagnrýna morðsveitirnar. Það er ljóst að hver sem tekur afstöðu með fólkinu gegn gróðamaskínunni og vekur athygli eignast vopnaða fjendur sem hafa skotleyfi á hvað sem hreyfist.

http://www.issuesinmedicalethics.org/153ed104.html

http://www.binayaksen.net/

http://mrzine.monthlyreview.org/2007/amr140607.html

http://online.wsj.com/article/SB10001424052970203418804576038944286704916.html

http://indianvanguard.wordpress.com/2010/12/28/dr-binayak-sens-statement-to-the-court/#more-7510

Das, Samarendra. Out Of this Earth. Orient Black Swan. Bretland.

RVK9 – miðvikudaginn kl. 8:30
Sirkusatriði yfirvalda í kringum RVK9 mun halda áfram á miðvikudaginn klukkan 8:30. Tímasetningin hefur verið færð út fyrir opnunartíma héraðsdóms svo lögreglan geti tekið sér stöðu í salnum en aðstandendum er haldið fyrir utan. Eins og Ragnar Aðalsteinsson hefur minnst á þá er búið að dæma fólkið fyrirfram þegar lögregla er viðstödd í réttarsalnum. Þegar fjölmiðlar greina frá því að almenningi var meinaður aðgangur og sérsveitarmenn voru inn í réttarsal er búið að dæma fólkið fyrirfram, eins og Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður hefur ítrekað sagt. Þetta gefur þá mynd að fólkið sé algjörlega galið og sérsveitin þurfi að vera viðstödd til að hafa hemil á því. Það þarf eitthvað mikið að gerast til að samstaðan sem hefur myndast í máli nímenninganna rofni því upploginn vitnisburður þingvarða og lögreglu hefur verið afhjúpaður.

En hver getur mætt og sýnt samstöðu klukkan 8:30?

Talaðu við vinnuveitandann þinn, slepptu því að fara í fyrirlesturinn í skólanum, finndu leið til að mæta því aldrei hefur misbeiting valds verið eins opinber og nú. Með því að mæta fyrir framan héraðsdóm með fána, lúðra, trommur, o.s.f.v. geturðu tekið þátt í sirkusnum. Hljóðfæri eru svo sannarlega bönnuð inn í Héraðsdóm en hvað er sirkus án tónlistar?

Stuðningsyfirlýsing

Ákærur og samsæri
Samsæri gegn aðgerðarsinnum af hálfu yfirvalda er alkunnugt fyrirbæri. Opinberir starfsmenn, lögregla og skipaðir verjendur eru oft hluti af slíku leikriti sem sett er á svið í þeim tilgangi að koma fólki úr umferð eins lengi og mögulegt er því það ógnar gildum (auðvalds)samfélagsins. Ákærurnar eru oft ekki í neinu samhengi við atburðinn og fjöldi þeirra til þess eins gerður að víkka refsirammann.

Crimethinc hefur tekið saman nokkur mál sem voru sótt gegn aðgerðarsinnum þar sem reynt er að ákæra á grundvelli laga sem hafa ekkert með athæfið að gera.

The Age of Conspiracy Charges

RVK9, nei ég meina Atenco12 frjáls ferða sinna
Þann 30. júní síðastliðinn var 12 pólitískum föngum í Mexíkó sleppt lausum eftir að hæstiréttur þar í landi úrskurðaði þá saklausa meðal annars af ákæru um skipulagt mannrán og uppþot í borginni San Salvador Atenco. Árið 2006 voru þeir dæmdir í allt frá 31 til 112 ára fangelsi í undirrétti en hæstiréttur sneri dómnum við og segir í dómsúrskurðinum að “yfirvöld byggja málið á röngum og veikum ágiskunum. Þau eru ákærð fyrir það eitt að hafa verið nálægt atburðinum.”

Atburðurinn sjálfur snerist hins vegar ekki um mannrán heldur baráttu bænda gegn ákvörðun yfirvalda um að leyfa niðurrif á helsta götumarkaði bæjarins og úthluta WalMart verslunarkeðjunni byggingarleyfi á lóðinni. Markaðurinn sem um ræðir nefnist Belisario Domguez og er í bænum Texcoco um 25 km frá Mexíkóborg. Í Mexíkó er rík hefð er fyrir götumörkuðum (Tianguis) sem er stjórnað af íbúum hvers svæðis fyrir sig og má rekja tilvist þessara markaða allt aftur til tíma Asteka. Bændur selja þar afurðir sínar og handverksfólk selur handgerða listmuni en hvort tveggja er þáttur í að viðhalda þeirri menningu sem ríkir á svæðinu.

Þann 3.maí 2006 mættu u.þ.b. 60 blómabændur og settu upp söluborð við markaðinn. Eftir að hafa neitað að hlýða fyrirmælum lögreglu og yfirgefa svæðið voru þeir beittir alvarlegu ofbeldi af hálfu lögreglunnar. Í kjölfarið slógust fleiri bændur í hópinn frá nágrannabænum Atenco og settu þeir upp götuvirki í helstu götu bæjarins til að hindra för lögreglu. Fréttirnar bárust á milli eins og eldur í sinu því meðal blómabændanna voru meðlimir FPDT (People’s Front in Defense of the Land) sem lengi höfðu barist gegn byggingu alþjóðlegs flugvallar fyrir Mexíkóborg á landi íbúa San Salvador Atenco. Tugir særðust í átökunum og einn lét lífið en þeim lauk með því að íbúum tókst að hrekja lögreglu á brott.

Það var ekki fyrr en morguninn eftir sem hörmungarnar hófust. Þann morgunn, klukkan 6:30, þrömmuðu rúmlega 3000 lögregluþjónar inn í Atenco og gengu berserksgang um allt sem varð á vegi þeirra. Lögreglan skaut táragashylkjum í höfuð fólks á stuttu færi, braut niður hurðir og dró fólk úr rúmum sínum og út á götur. Ein þeirra var talsmaður mannréttindasamtaka sem hafði talað fyrir opnum tjöldum á degi verkalýðsins 1.maí í Mexíkóborg, og sparkaði hópur lögregluþjóna síendurtekið í klofið á henni. Fréttamenn á svæðinu voru einnig handteknir og síðar lamdir með kylfum meðan þeir sátu í varðhaldi. Óskað var eftir aðstoð frá Rauða krossinum í nærliggjandi borgum en þegar starfsmenn hans komu á svæðið var þeim meinaður aðgangur af lögreglu.

Talið er að allt að þrjúhundruð manns hafi verið handteknir þann dag en lögreglan nefnir aðeins 109 í sínum skýrslum. Af þeim voru 47 konur og þrjátíu þeirra var nauðgað í varðhaldi. Að sögn eins fórnarlambs lögregluofbeldisins tók það sex klukkustundir fyrir lögreglu að flytja þau í varðhald en venjulega tekur aðeins tvær klukkustundir að keyra þá leið. Á leiðinni voru þau látin liggja í blóðpolli félaga sinna og konum nauðgað ítrekað. Enn hafa 18 einstaklingar ekki fundist eftir innrás lögreglunnar og 14 ára drengur var skotinn í brjóstkassann af stuttu færi með haglabyssu. Tvær stærstu fjölmiðlasamsteypur landsins höfnuðu óskum mótmælenda um viðtöl en tóku hinsvegar við frétttilkynningu lögreglunnar og birtu hana.

Fyrr á árinu höfðu borgarbúar haldið fulltrúum Menntamálaráðs fylkisins í fundarherbergi eftir að yfirmaður menntamála í fylkinu hafði ítrekað hunsað ósk borgarbúa um fund vegna vanrækslu í menntamálum í borginni. Þeim var þó sleppt nokkrum tímum síðar ómeiddum. Fjölmiðlar blésu upp atvikið og varð mannrán rauði þráðurinn í gegnum frásögnina frá átökunum í Atenco en mannrán eru tíð í Mexíkó og hræðsla mikil meðal almennings. Þetta birti gríðarlega ranga mynd af atburðinum og dró úr mögulegri samstöðu innanlands.

Mannréttindaráð Mexíkó (CNDH) hrinti af stað rannsókn sem stóð yfir í fimm mánuði og lýsti átökunum sem hörmungum yfir íbúum Atenco. Borgar- og alríkislögreglan hefði misnotað vald sitt og skotvopn. Í skýrslunni kemur einnig fram að:

* 207 manns (þar af 10 undir lögaldri) urðu fyrir grimmilegri, ómannúðlegri og niðurlægjandi meðferð.

* 145 manns voru handteknir með ólögmætum hætti

* 26 konum sem voru í varðhaldi var nauðgað af lögreglumönnum

* 5 einstaklingar með erlent ríkisfang voru beittir ofbeldi og sendir ólöglega úr landi

Að þessu frátöldu sagði Mannréttindaráðið að lögreglan hafi brotist inn á heimili, brotið þar allt og bramlað, rænt verðmætum, dregið fólk úr rúmum sínum og misþyrmt börnum, eldra fólki og fötluðum. Átökunum lauk með handtöku 12 manns sem voru ákærð fyrir skipulagt mannrán á starfsmönnum menntamálaráðs fyrr á árinu og þátttöku sína í mótmælunum í Atenco þann 3.maí. Þau voru dæmd í 31 – 112 ára fangelsi. Dómnum var áfrýjað til hæstaréttar landsins sem felldi hann niður og sagði að sönnunargögn gegn þeim væru ólögmæt. “Þó fólkinu hafi verið haldið í stuttan tíma er ekki hægt að skilgreina það sem skipulagt mannrán.”, sagði Juan Silva Meza, einn hæstaréttardómaranna í málinu. Hann sagði einnig að “þetta [liti] út fyrir að vera tilraun til að gera almenn mótmæli að glæpsamlegu athæfi”.

Enn hefur lögreglan ekki þurft að svara fyrir það ofbeldi sem hún beitti gegn þúsunda friðsamra íbúa bæjarins og enginn lögregluþjónn hefur verið dæmdur fyrir þátttöku sína í aðgerðinni.

Yfirvöld í Mexíkó eru ekki þau einu sem reyna að svipta borgara frelsi sínu til lífstíðar vegna pólitískra skoðana þeirra og aðferðum við að láta þær í ljós. Eins og flestir hafa eflaust tekið eftir í fjölmiðlum undanfarna mánuði þá reynir skrifstofa Alþingis og íslenskt ákæruvald að feta í fótspor héraðsdómstóls Mexíkófylkis með því að kæra 9 einstaklinga fyrir árás á Alþingi með möguleika á lífstíðardómi.

Ætlun Svartsokku er ekki að setja samasem merki milli atburðanna tveggja en eftirmálarnir eru hinsvegar nákvæmlega eins. Stjórnvöld* velja nokkra einstaklinga úr hópi þúsunda og gera tilraun til að fjarlægja þá úr samfélaginu með því að bera upp á þá sakir sem standast ekki skoðun og tengist athæfinu ekki á nokkurn hátt.

Skýringar á framferði lögreglunnar í Atenco hinn 4.maí 2006 eru djúpstæðari en svo að einungis hafi verið um að ræða ofbeldisfullar löggur sem komist upp með glæpi vegna spillingar í samfélaginu. Líklegt þykir að þessar misþyrmingar lögreglu hafi verið fyrirskipaðar af stjórnvöldum sem liður í úthugsuðum aðgerðum gegn pólitískum andstæðingum ríkisstjórnarinnar. Aðilar tengdir FPDT hreyfingunni, sem á var minnst hér að ofan, hröktu bæjarstjóra Atenco á brott árið 2002 og náðu bænum á sitt vald við það. Með því minnkuðu snarlega völd ríkisstjórnarinnar yfir bænum, sem er staðsettur í útjarði Mexíkóborgar, en í öðru fylki. Áætlanir þáverandi forseta landsins, Vicente Fox, um að um að starfrækja þar alþjóðlegan flugvöll mætti því harðri andspyrnu. Einnig hafa tengsl FPDT og Zapatista hreyfingarinnar, EZLN, haft sitt að segja. En EZLN náði fylkinu Chiapas í suðurhluta landsins á sitt vald árið 1994 í baráttu sinni fyrir réttindum frumbyggja og hefur haldið sjálfstjórn þar síðan. Nokkuð ljóst er að stjórnvöld hafa tekið þá ákvörðun að láta ekki annað Chiapas eiga sér stað í bakgarði Mexíkóborgar.

* Í tilfellinu á Íslandi var það skrifstofa alþingis sem kærði en vegna   meints þrýstings frá forseta alþingis.

Skófla er alltaf skófla, kúgun er kúgun
Sokku barst eftirfarandi tilkynning:

Skófla er skófla, kúgun er kúgun

Umhverfishreyfingin Saving Iceland lýsir yfir fullri samstöðu með sakborningunum níu í Reykjavík (RVK9), sem eiga á hættu allt frá eins árs til sextán ára fangelsisvist fyrir að nýta lýðræðislegan rétt sinn til að mótmæla skammarlegu þjóðþingi, 8. desember 2008.

Þessir níumenningar hafa verið valdir úr þeim þúsundum manna sem felldu fyrri ríkisstjórn með mótmælum sínum, ríkisstjórn sem vegna spillingar og getuleysis bar ábyrgð á þeirri sögulegu kreppu sem enn þjakar íslenskt samfélag. Skýrsla hinnar sérstöku rannsóknarnefndar (SIC – viðeigandi skammstöfun) hefur nú staðfest að þessi ríkisstjórn lék lykilhlutverk í þeirri valdníðslu sem hafði í för með sér algjört hrun hins íslenska hagkerfis og var lykilafl í þeirri alvarlegu spillingu, lýðræðisbresti og siðferðiskreppu sem síðan hefur komið í ljós að voru duldar orsakir hins algjöra lánleysis íslensks lýðræðis.

Að stimpla pólitíska andstæðinga sem glæpamenn, jafnvel þá sem beita ofbeldislausri, borgaralegri óhlýðni, er gömul aðferð til að afvegaleiða, notuð af kúgunarríkjum um allan heim. Þessi pólitíska kúgunaraðgerð er í æpandi mótsögn við hræsnisfullar yfirlýsingar um að ‘axla ábyrgð’ og ‘læra af reynslunni’ sem flokkarnir sem bera ábyrgð á kreppunni hafa gefið. Svo sagan endurtaki sig ekki, ættu Íslendingar að taka mjög alvarlega þá kerfisbundnu misbeitingu valds sem hefur orðið uppvíst að er rótföst í valdakerfinu og ekki láta beina sök þeirra að níumenningunum og öðrum mótmælahreyfingum.

Enn sem komið er hefur ekki einn einasti einstaklingur úr stjórnmálum eða viðskiptalífi verið dreginn fyrir dómstóla, þó að margir þeirra hafi frá öllum hliðum verið tilnefndir sem sökudólgar kreppunnar. Sú staðreynd að hinir ungu níumenningar séu fyrstu einstaklingarnir fyrir rétti í kjölfar kreppunnar sýnir svo ekki verður um villst það andrúmsloft afneitunar sem nú gegnsýrir íslenskt samfélag, og hneykslanlega tregðu íslenska ríkisins og stjórnmálastéttarinnar til að taka á sig ábyrgð eða draga lærdóma af orsökum kreppunnar.

Málaferlin gegn níumenninngunum eru blygðunarlaus afvegaleiðsla sem framkvæmd er af algerlega ábyrgðarlausu valdakerfi í fullkominni afneitun gagnvart þeim smánarlegu aðstæðum sem íslenskt lýðræði er nú komið í. Við horfum upp á kerfi sem rúið er trausti reyna að búa til sökudólga úr fólki fyrir að mótmæla þingi sem hefur verið einum rómi fordæmt fyrir að vera spillt, getulaust og vanhæft. Saving Iceland spyr hvort íslenska ríkið muni endurheimta nokkra virðingu fyrir stofnunum þess, sér í lagi þegar það legst á eitt með leggja í rúst líf þessara níu einstaklinga og fjölskyldna þeirra?

Alvarlegir misbrestir í íslensku samfélagi eru engar nýjar fréttir fyrir Saving Iceland hreyfinguna. Þegar íslenskt samfélag var í heljarklóm þeirrar ofsagræðgi sem leiddi til hrunsins vorum við meðal þeirra sárafáu sem stigu fram til að afhjúpa þróuninna og stemma stigu við henni. Af því leiddi bæði óhróðursherferðir í fjölmiðlum og pólitískar ofsóknir af hálfu dómstóla og lögreglu.

Núverandi ‘vinstristjórn’ heldur ekki einungis áfram hinni pólitísku kúgun, heldur eykur hana verulega. Nú hyggur ríkið á hefndir með þungum fangelsisdómum.  Það er í hefndarskyni fyrir það sem í raun var einungis sakleysisleg og ofbeldislaus borgaraleg óhlýðni. Hin dulda réttlæting þessarar kúgunar er sú að hindra frekari borgaralega óhlýðni.

Saving Iceland vill vekja tafarlausa athygli alþjóðlegra mannréttinda- og borgararéttindasamtaka á þessari árás á lögfest réttindi mótmælenda á Íslandi. Þau réttindi eru lögfest bæði í stjórnarskrá og alþjóðlega.

Jafnvel þó að menn hafi nýlega komist að því að skrifstofa alþingis ber ábyrgð á málsókn og ákærum gegn níumenningunum, hefur forseti þingsins haldið því fram að málið sé komið úr höndum löggjafarvaldsins og komið í ‘öruggar’ hendur dómsvaldsins. Hvílík kaldhæðni! Á Íslandi er ekki að finna skýr mörk á milli dómsvalds og ríkisvalds. Enn er það svo að íslenskir dómstólar (héraðsdómur og hæstiréttur) hafa kerfisbundið verið byggðir upp af klíkulimum Sjálfstæðisflokksins. Þetta er í samræmi við hinar tíðu ásakanir um að Ísland sé ekkert annað en ‘bananalýðveldi’. Dómskerfið á Íslandi er nákvæmlega jafn ótrúverðugt og pólitíska kerfið og fjármálageirinn.

Maður hlýtur að álykta að óreiðunni sem hingað til hefur fylgt málflutningnum í máli níumenninganna, þar sem jafnvel hefur komið til uppþota, hafi verið leyft að magnast svo mjög vegna þess að það sé hluti af meðvitaðri og kaldrifjaðri tilraun kerfisins til að skapa pólitískann óstöðugleika í kringum málið og auk þess neikvæða mynd af hinum ákærðu. Ítrekaðir dómgreindarbrestir dómarans virðast staðfesta þennann grun, þeir hafa sífellt aukið spennuna og bætt í farsakennt inntak réttarhaldanna.

Þetta sést greinilega á því hvernig fjölmiðlar, sem enn er stýrt nánast eingöngu af nýfrjálshyggjuöflum, hafa stöðugt kynnt málið. Íslenskir fjölmiðlar hafa ítrekað kallað eftir þungum dómum yfir hinum ákærðu og jafnan lýst yfir augljósri sekt þeirra. Þetta hefur gengið svo langt að Ragnar Aðalsteinsson hefur lýst yfir því að níumenningarnir eigi enga möguleika á sanngjörnum réttarhöldum.

Þegar Ríkisútvarpið um síðir fékk aðgang að og sýndi öryggisupptökur af því þegar sakborningar fóru inn í þinghúsið varð augljóst að ákærurnar um ofbeldi og líkamsmeiðingar gegn starfsfólki þingsins voru með öllu tilhæfulausar.

Ein meginröksemdin sem íslenskir fjölmiðlar hafa borið fram gegn hinum ákærðu var að þeir hefðu innleitt ofbeldi í íslenskar mótmælaaðgerðir og því þyrfti að taka á þeim af festu. Þrátt fyrir mikið vægi málsins þögðu þessir sömu refsiglöðu fjölmiðlar sem fastast þegar Ríkissjónvarpið bar fram óhrekjanleg gögn sem sýna að ofbeldisákærurnar byggjast á hreinum lygum. Þetta er æpandi dæmi um tregðu íslenskra fjölmiðla (sem Rannsóknarnefnd Alþingis setti alvarlega ofan í við fyrir að vera viljugir þjónar þeirra sem báru ábyrgð á kreppunni) til að læra sína lexíu og og axla ábyrgð sína fyrir að hafa vanrækt siðareglur blaðamennskunnar og lýðræðisskyldur sínar árum saman.

Við viljum einnig vekja athygli á þeim hefndarhug sem felst í ákærunum á hendur níumenningunum. Hann styrkist við þá staðreynd að Samfylkingin, sem á að heita flokkur vinstra megin við miðju og leiðir nú ríkisstjórnina, deildi völdum með Sjálfstæðisflokknum í þeirri ríkisstjórn sem mótmælahreyfingin hrakti frá völdum.  Innan núverandi ‘vinstristjórnar’ er hefndarhug þessara tveggja flokka friðþægt með því að halda til streitu ákærunum gegn níumenningunum.

Augljóst er að Vinstri grænir, sem komust til valda fyrir tilstilli mótmælahreyfingarinnar og deila nú völdum með Samfylkingunni, munu ekki af neinni alvöru þrýsta á samstarfsflokk sinn um að draga ákærurnar til baka. Svo virðist sem fórna eigi mótmælendunum til þess að friða þá sem engjast í hinu alþjóðlega sviðsljósi fyrir ábyrgð sína á kreppunni. Þetta eru fullkomin svik við kröfuna um virkara lýðræði og siðlegri stjórnmál sem fleytti Vinstri grænum til valda árið 2009.

Saving Iceland ítrekar yfirlýsingu sína um fullkomna samstöðu með níumenningunum og fjölskyldum þeirra. Einstaklingar innan Saving Iceland hreyfingarinnar þekkja ágætlega tilfinninguna sem fylgir því að vera glæpgerður og dreginn í gegnum réttarsali fyrir uppblásnar eða vísvitandi falsaðar ákærur fyrir að taka þátt í ofbeldislausri, borgaralegri óhlýðni. Við höfum lært að það er eitt af duldum markmiðum ríkisins að beita slíkum réttarhöldum til þess að rústa lífi okkar og ástvina okkar með því að kasta skugga á framtíð okkar. Þetta er meðvituð og kerfisbundin aðferð sem miðar að því að kæfa raddir okkar og draga úr okkur kjark. Það skiptir öllu að samfélagið átti sig á að eðli þessarar ríkisreknu aðferðar, að ofsækja pólitíska andstæðinga með glæpastimplun, sé svo sannarlega kaldrifjað pólitískt kúgunartæki.

Aðgerðir níumenninganna gegn Alþingi Íslendinga 8. desember 2008 gengdu mikilvægu hlutverki í að herða á mótmælum almennings gegn spilltri ríkisstjórn og stuðluðu verulega að falli hennar. Þessi staðreynd ein og sér ætti að sannfæra Íslendinga um að þeir ættu að vera þakklátir fyrir það hugrekki sem níumenningarnir sýndu, að þeir ættu að taka afstöðu gegn því að níumenningarnir séu dregin í gegnum langdregin réttarhöld og fái hugsanlega fangelsisdóma. Því skorum við á Íslendinga að styðja hina ákærðu með ráðum og dáð og stöðva það svívirðilega réttarofbeldi sem felst í þessu máli.

Saving Iceland mælist til þess einnig að alþjóðasamfélagið og samtök á vettvangi borgararéttinda og mannréttinda taki málið þegar í stað til rannsóknar og grípi til aðgerða sem fyrst til þess að stöðva þessar pólitísku ofsóknir.

Saving Iceland krefst þess að lokum að ákærur gegn níumenningunum séu þegar í stað dregnar til baka, og ennfremur, að Alþingi og íslenska ríkið sendi frá sér opinberar afsökunarbeiðnir til sakborninga og fjölskyldna þeirra fyrir þessa hreinræktuðu pólitísku kúgunaraðgerð.

English version:

http://www.savingiceland.org/0629/a-spade-is-a-spade-repression-is-repression/

Helgar tilgangurinn meðalið? Um mál gegn flugbrautarhlaupurum
Á morgun, föstudaginn 5. febrúar, mun lokið réttarhöldum yfir flugbrautarhlaupurunum tveim sem stöðvuðu farþegavél á leið frá Keflavík til Ítalíu með flóttamanninn Paul Ramses um borð. Mikil umfjöllun átti sér stað fyrir tveim árum þegar Björn Bjarnason, þáverandi dómsmálaráðherra, og síðar Útlendingaeftirlitið neituðu að taka mál hans til meðferðar. Hann hafði flúið frá Kenía til Íslands þar sem hann átti ættingja hér, frænda og móðursystur.

Paul kom til Íslands í byrjun árs 2008 stuttu eftir að kosningum lauk í Kenýa og ljóst var að yfirlýstir stuðningsmenn grasrótarflokksins ODM (Orange Democratic Movement) sem hann hafði unnið fyrir, væru í lífshættu. Þetta var þó ekki í fyrsta skipti sem hann steig niður fæti á Íslandi því árið 2005 vann hann hérlendis fyrir ABC Barnahjálp og fór í kjölfarið aftur til Kenía og starfaði þar fyrir samtökin. Í Kenía tók hann þátt í að stofna skóla með Íslendingum og var verkefnið stutt af Utanríkisráðuneytinu.

Þrátt fyrir að eiga barn sem fæddist á Íslandi og fjölskyldu sem hefur búið á landinu í 15 ár var honum synjað um stöðu flóttamanns. Það er kannski óþarft að nefna að Útlendingaeftirlitið braut með þessum hætti barnalög og barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem kveður á um að barnið eigi rétt á samvistum við báða foreldra. Íslensk stjórnvöld vissu vel að stjórnvöld á Ítalíu [1]yrðu að taka við honum því Ítalía var fyrsta landið sem Paul nam innan Schengen svæðisins og þessvegna tóku íslensk stjórnvöld mál hans ekki fyrir. Hinsvegar hafa íslensk stjórnvöld fullt frelsi til þess að gera það ekki.

Hvað liggur að baki slíkri ákvörðunartöku?

Svartsokka ætlar sér ekki að fjalla nánar um mál Paul Ramses að svo stöddu. Mikið af greinum hafa verið skrifaðar um málið og auðvelt að verða sér út um þær. Hins vegar vill hún fjalla nánar um málið gegn þeim sem reyndu að koma í veg fyrir að Ramses yrði sendur úr landi.

Á morgun mun héraðsdómur fjalla um mál þeirra sem hlupu inn á flugbrautina og reyna að aðskilja ásetninginn frá aðgerðinni. Mennirnir tveir eru ákærðir fyrir húsbrot fyrir það að notfæra sér nærstaddar tunnur til að stökkva yfir girðingu. Einnig eru þeir ákærðir fyrir að raska flugvallaröryggi. Á sama tíma eru engar ákærur gerðar á hendur þeim sem brjóta á  mannréttindum fólks og barnalög með því að senda það úr landi, hugsanlega í opinn dauðann.

Þingmenn, aðstandendur, grasrótarhópar og fjölmiðlar fordæmdu synjunina á hælisumsókninni en létu þar við sitja. Hversu margir eru hins vegar tilbúnir til að sýna viljann í verki þegar réttlætiskenndin er annars vegar?

Í þessu máli eru mennirnir kærðir fyrir húsbrot, sem fólst í því að stökkva yfir girðingu. En skiptir ekki máli hver ásetningur húsbrotsins er? Eftir því sem næst verður komist álitu þeir Ramses vera í lífshættu með því að vera sendur úr landi. Mál þetta höfðar því til réttlætiskenndar okkar allra. Hægt er að taka hliðstætt dæmi um einstakling sem sæi einhvern vera í bráðri lífshættu nærri sér. Viðkomandi myndi hins vegar þurfa að brjótast inn til þess að bjarga lífi mannsins. Væri réttmætt að ákæra hann fyrir það ef verknaðurinn myndi að lokum leiða af sér eitthvað jákvætt, þ.e að bjarga lífi einhvers? Er rangt að stökkva yfir girðingu í þeim tilgangi að sameina fjölskyldur og reyna að veita þeim betra líf?

Lögin eru alltaf opin til túlkunar. Hvað telst vera húsbrot og hvað ekki? Er girðing líka hús? Hvenær er flugvallaröryggi ógnað og hvenær ekki? Er því ógnað þegar tveir vopnlausir menn stöðva flugvél með því að leggja engan nema sjálfan sig í hættu? Ekkert bendir til þess að öryggi neins farþega hafi verið í hættu, nema þá öryggi Ramsesar sjálfs, sem var ógnað af ákvörðunum útlendingaeftirlitsins. Ásetningurinn var að reyna að koma í veg fyrir að mannréttindabrot ætti sér stað og einnig brot á barnalögum SÞ.

Að lokum er vert að benda á grein eftir Hauk Má Helgason, þar sem hann segir Vesturlönd koma fram við flóttamenn eins og rusl, en hana má sjá hér.

[1] Stjórnvöld á Ítalíu hafa lengi setið undir mikilli gagnrýni fyrir ómannúðlega framkomu við flóttafólk sem ekki fá málsmeðferð og eru oft send strax aftur til heimalandsins eftir að tekin er af þeim skýrsla. Starfsfólk SÞ gagnrýnir stjórnvöldin sérstaklega fyrir að hleypa ekki starfsfólki sínu inn í flóttamannabúðir til að kanna aðstæður.