fimmtudagur, 29. júlí

Innskrá

Safn

Afhverju engin komment leyfð?

Sæl Svartsokka.

Óskaplega skemmtilegur vefurinn ykkar en það hefði nú verið gaman að fá að kommenta á greinarnar ykkar.

Kveðja,

Birgir

Starfsmaður í banka

Sæll Birgir.

Svartsokka er mjög hlynnt ólátum af ýmsum toga og fögnum við slíkri hegðun þegar hún er stunduð í þeim tilgangi að bæta heiminn. Hinsvegar hafa komment hingað til haldið fólki frá því að gera eitthvað í málunum. Fólk situr þá á hliðarlínunni og garrgar út í tómið eitt en er ekki reiðubúið til þess að taka þátt í niðurrifinu eða baráttunni sem hefst á götum borgarinnar en ekki heima í stofu. Lesendabréfið heldur þannig hliðarlínudólgunum í eins hæfilegri fjarlægð og mögulegt er. Svartsokka hvetur alla til að senda sér póst í lesendabréfið á svartsokka (hjá) svartsokka.org