Svartsokka

hlutdrægni við mótlæga fréttamennsku

Table, Bed, Chair – Amsterdam Squatters

31/1/10 • Flokkur: Kvikvarp

265113Svartsokka býður lesendum að niðurhala myndinni Table, Bed, Chair sem fjallar um hústökumenninguna í Amsterdam.

Holland hefur lengi verið fræg fyrir löggjöf sem er mjög hliðholl hústökufólki. Ef húseigandi hefur látið hús standa autt í heilt ár og fólk kemur sér fyrir hýbýli þar, sem er skilgreint af yfirvöldum sem að hafa borð, stól og rúm innanstokks, hefur hústökufólkið öðlast notkunarrétt yfir fasteigninni.
Þetta er auðvitað ekki alveg eins einfalt og það hljómar, og hafa húseigendur og yfirvöld fjöldamörg úrræði til taks til að endurheimta húsin. En hústökufólkið berst á móti, þessa daganna enn harðar en áður þar sem hollensk yfirvöld, líkt og önnur evrópsk yfirvöld, heyja harða baráttu gegn hústökufólki og öðrum andstæðingum kapítalismans og hvert frísvæðið á fætur öðru á undir högg að sækja þessa dagana.

Í þessari heimildarmynd er áhorfandinn leiddur um heim hústökufólks í Amsterdam, tekin með í hústöku, gengur í gegnum nýuppbrotna hurð ásamt hópi nýrra íbúa og gengur um götur logandi af götuslagsmálum við yfirvaldsbullur sem komnir eru til að berja og bera fólk út úr heimilum sínum.
Myndin er samansett af upptökusöfnum frá uppgangsárum hústökumenningarinnar í Amsterdam í lok 8. byrjun 9. áratugarins og viðtölum við nú- og fyrrverandi hústökufólk sem deila með sér hinum mismunandi hugmyndum sínum, reynslu og baráttusögu.

Tungumál: Hollenska
Texti: Enskur

Leiðbeiningar um auðvelt niðurhal rar-skráa má finna hér.

Table, Bed, Chair 1
Table, Bed, Chair 2
Table, Bed, Chair 3
Table, Bed, Chair 4
Table, Bed, Chair 5
Table, Bed, Chair 6
Table, Bed, Chair 7
Table, Bed, Chair 8

Einnig er hægt að sækja myndina í einni stórri skrá frá squat.net hér.

Merkimiðar: , ,

Ekki hægt að gera athugasemd.