Svartsokka

hlutdrægni við mótlæga fréttamennsku

Rozbrat-Poznan

02/2/10 • Flokkur: Kvikvarp

solidarityrozbratSvartsokka bætir hér enn einum tengli við ört stækkandi safn heimildarmynda sem síðan vísar til. Að þessu sinni er það myndin Rozbrat-Poznan, sem er gerð af íbúum hústökubúðanna Rozbrat í Póllandi. Þar hefur verið komið upp upplýsingamiðstöð, félagsmiðstöð, anarkísku bókasafni, frímarkaði, eldhúsmiðstöð og hýbýlum ásamt því að svæðið er vettvangur fyrir fjöldann allan af félagslegum viðburðum og miðstöð fyrir róttæka hugsun.

Rozbrat er einmitt eitt af þeim rótgrónu tökusvæðum sem eiga undir högg að sækja um þessar mundir. Yfirvöld í Póllandi, líkt og annars staðar í Evrópu, hafa lýst hústökufólki stríði á hendur og slá í sífellu um sig með hótunum um að nú skulu svæðin rýmd. Því þykir ærið tilefni til að birta þessar, sem og aðrar, svipmyndir af daglegu lífi hústökufólks og baráttu þeirra, til að skapa meiri umfjöllun, umræður og samstöðu um menningarheima hústökufólks, notkunarréttinn og baráttuna fyrir fleiri frísvæðum.

Hópur hérlends hústökufólks gerði stuðningsaðgerð við Rozbrat búðirnar þann 6.5. síðastliðinn, á alþjóðlegum stuðningsdegi við Rozbrat hústökuna, með því að endurtaka hústökuna á Vatnsstíg 4 og halda fríbúðinni opinni. Meira má lesa um þá aðgerð hér á hustaka.org.

Myndin Rozbrat-Poznan er hýst á squat.net og er hægt að horfa á hana á netinu, eða niðurhala með því að hægri-smella á tengilinn og vista sem skrá.

Tungumál: Pólska
Texti: Enska

Rozbrat-Poznan niðurhal

Ekki hægt að gera athugasemd.