Svartsokka

mótvægi við hlutdræga fréttamennsku

BZ

27/1/10 • Flokkur: Kvikvarp

Hústökufáni

Hústökufáni

Hér fyrir neðan eru tenglar til að niðurhala myndinni BZ. Hér er á ferðinni dönsk heimildarmynd, gerð af Helle Hansen, sem fjallar um sögu hústökufólks, kallað BZ-arar, í Kaupmannahöfn á árunum 1981 – ’86.

Í myndinni hefur atburðarásinni verið stokkað upp þannig að hún krossklippir á milli tímabila, en heldur sig þó mest við árin 1981, 1982 og 1986 sem voru minnisverðustu ár hústökubaráttu þess áratugar. Í gegnum viðtöl við þrjá BZ-ara sem voru hluti af innsta kjarna hópsins frá stofnun “Frumkvæðishópsins fyrir Ungdómshúsi” árið 1981 fáum við sögur frá góðum og slæmum tímum, frá hversdagslífinu í kollektívunum, frelsinu og samvinnuandanum sem ríkti yfir öllu ásamt útburðum og götuslagsmálum við yfirvöld.

Góður annáll um baráttuna sem leiddi til uppgjafar borgarstjóra og afhendingar hans á lyklum að Ungdómshúsinu, sem stóð við Jagtvej 69 til ársins 2007, við blauta athöfn á tröppum þess. Einnig sýnir myndin frá hinni óborganlega skemmtilegu hústöku á Allotria húsinu í Österbro, þar sem hústökufólkið laumaði sér út í gegnum göng sem grafin voru undir veginn yfir í nærliggjandi hús og sluppu þannig framhjá 800 vígbúnum og froðufellandi auðvaldshundum sem mættir voru til að bera og berja fólkið út.

Tungumál: Danska
Texti: Enginn (ennþá)

Leiðbeiningar um auðvelt niðurhal rar-skráa má finna hér.

BZ Part 1
BZ Part 2
BZ Part 3
BZ Part 4
BZ Part 5
BZ Part 6
BZ Part 7
BZ Part 8

Merkimiðar: , ,

Ekki hægt að gera athugasemd.