The Angry Brigade og The Angry Years
05/2/10 • Flokkur: Kvikvarp
Myndin The Angry Brigade er frá árinu 1974 og fjallar um herskáann hóp breskra aðgerðarsinna sem kallaður var The Angry Brigade. Undir lok 7. áratugar og í upphafi þess 8. stóð hópurinn fyrir mannfallslausum sprengitilræðum á hinar ýmsu stofnanir og byggingar sem voru táknrænar fyrir kapítalisma og stjórnvaldsræði. Myndin gefur góða mynd af pólitísku andrúmslofti vinstri sinnaðra stjórnmála á þessum tíma í Englandi og með svipmyndum og viðtölum segir hún sögu hópsins í samtíma hans.
Angry Brigade hópurinn dróg innblástur sinn frá frönsku situationalistunum og anarkistum spænsku borgarastyrjaldarinnar, ólíkt svo mörgum öðrum herskáum aðgerðarhópum sem á þessum tíma voru starfandi víðsvegar um Evrópu sem flestir kenndu sig við eitthvert form af Marxisma, líkt og R.A.F. í Þýskalandi og The Red Brigade í Ítalíu, eða börðust fyrir frelsi frá nýlenduherrum sínum líkt og I.R.A. Þó Angry Brigade hafi ollið miklu fjaðrafoki á Bretlandseyjum á sínum tíma hurfu þau fljótt í skuggann af áðurnefndum hópum sem fengu miklu meiri fjölmiðlaumfjöllun sökum sölukrafts ofbeldisverka þeirra.
Tungumál: Enska
Texti: Enginn
The Angry Years er töluvert nýrri af nálinni, en fjallar um sama hóp. Hér er í raun um 22 mínútna þátt sem hleypur á yfirborðslegan og grunnhygginn hátt yfir aðgerðir hópsins og eftirfylgjandi sirkusréttarhöld, en virkar sem annáll yfir atburðina og kynning fyrir aðalmynd kvöldsins, sem er hin ofannefnda The Angry Brigade.
Tungumál: Enska
Texti: Enginn
Leiðbeiningar um auðvelt niðurhal rar-skráa má finna hér. Tenglarnir að neðan niðurhala myndunum.
