Bruni á Skólavörðustíg
18/10/09 • Flokkur: Fréttir,Hugvarp
Í dag brann hús á Skólavörðustíg sem hafði verið notað sem opið félagsrými grasrótarhreyfinga á Íslandi. Fríbúðin sem var starfandi í bakgarðinum brann ekki eftir heimildum Svartsokku. Sjónarvottar sáu þrjá einstaklinga hlaupa af vettvangi. Hvernig stendur á því að tvær hústökur sem báðar voru auglýstar sem opið félagsrými voru brenndar? Eigandi hússins á Skólavörðustíg hafði látið hústökufólk óáreitt þar sem hann hafði hugsað sér að rífa húsið en ekki höfðu fengist til þess tilskilin leyfi sökum húsaverndunarlaga. Fríbúðin á Vatnsstíg 4 var hins vegar endurheimt tvisvar eftir að hústökufólk lét ekki 50 óeirðarlögreglubullur reka sig út en síðar var kveikt í húsinu. Ekki er vitað hver var að verki.
Það er erfitt að álykta að ekki hafi verið um íkveikju að ræða á Skólavörðustíg því enginn var í húsinu þegar atburðurinn átti sér stað og það var einnig án rafmagns. Varla voru kertaljós kveikt á þessum tíma dags þar sem nóg af dagsbirtu berst inn um gluggana. Var íkveikjan hugsanlega skipulögð af eiganda húsins þar sem leyfi fékkst ekki til þess að rífa það vegna húsverndunarlaga? Svartsokka er hálf ringluð yfir þessu öllu saman og ætlar að setja punktinn hér í smá stund á meðan hún reynir að komast til botns í málinu.
