Svartsokka

hlutdrægni við mótlæga fréttamennsku

Hvellurinn við Miðkvísl

05/9/10 • Flokkur: Fréttir,Hljóðvarp

Fléttuþáttur eftir Hjördísi Finnbogadóttur um atburðinn í Mývatnssveit árið 1970 þegar á annað hundrað manns sprengdi stíflu Laxárvirkjunar í Miðkvísl.

Smelltu hér til að hlusta.

Tilvitnanir úr þættinum:

  • “Margir voru sárir fyrir að hafa ekki verið látnir vita, því allir hefðu viljað vera með”
  • “Presturinn tók að sér hlutverk ljósmyndara”
  • “Ánægjulegt andrúmsloft, fólk var með börn sín og allir voru
    glaðir og ánægðir. Fólk taldi sig ekki vera að vinna
    glæpaverk heldur gott og þarft verk”
  • “Síðar sýndi sagan svo að fólkið hafði rétt fyrir sér.”
  • “Okkur fannst það ekki vera lögbrot að eyðileggja stíflu sem
    hindraði silunginn í að komast upp ána”.
  • “Það sem einkenndi andrúmsloftið var þessi skæruliðalega vissa”
  • “Þetta byrjaði nú á því að mistakast því það voru ekki vanir menn
    sem handlöguðu sprengiefnið”
  • “Á endanum tókst það nú og þegar hún sprakk var þetta mikil
    tilfinningastund”
  • “Það voru allir tilbúnir að standa saman og taka afleiðingunum”
  • “Við hugleiddum ekki að lögregla myndi koma á staðinn. En
    stemninginn var nú bara þannig að lögreglunni hefði ekki verið
    hleypt að til að stoppa verkið”.
  • “Við höfðum svolítið af dínamíti svo að við vorum viss um að fá
    nokkuð rennsli í gegn”
  • “Ungir námsmenn tóku umfjöllunina upp á sína arma og það varð
    okkur gríðarlega mikilvægt”.
  • “Laxárdeilan snerist fyrst um hagsmuni en síðar um andóf gegn
    yfirgangi Landsvirkjunar”
  • “Við fengum þá ráðleggingu frá Gissuri lögfræðing að svara sem
    minnst. Að segja að við vissum það ekki eða mundum það ekki.”
  • “Dramatískasta sagan í þessum yfirheirslum var frá einum bóndanum
    í Vogum. Hann sagðist hafa heyrt ána kalla “ég er frjáls, ég er
    frjáls”
  • “Við leituðum til mannréttindanefndar í Brussel en það tókst ekki”
  • “Þessi hópur var búinn að ákveða það að Laxárstíflann yrði ekki
    reist og hann var reiðubúinn að halda áfram ef þessi aðvörun
    dygði ekki”
  • “Stíflan var byggð án löglegs leyfis og það notuðum við sem vopn
    í baráttunni”
  • “Ég trúi því ekki að slík vopn séu til staðar í dag í baráttunni gegn Kárahnjúkum og öðrum virkjunum”.
Merkimiðar: , , , ,

Settu inn athugasemd