Samstaða með stúdentum
11/11/09 • Flokkur: Fréttir,GreinarUndanfarið hafa borist fréttir víða að um baráttu stúdenta gegn markaðsvæðingu menntunar. Til að mynda hafa nemendur nokkurra háskóla í Austurríki tekið yfir fyrirlestrarsali til þss að berjast fyrir ókeypis og frjálsri menntun fyrir alla og gegn síaukinni markaðsvæðingu menntunar. Í september var nemendum Central Universiy of Ecuador mætt með lögregluofbeldi er þeir fóru í mótmælagöngu til þess að krefjast áframhaldandi ókeypis menntunar. Menntun er ókeypis samkvæmt stjórnarskrá Ekvador en til stendur að breyta því, sem hefur verið mótmælt harkalega af stúdentum við skólann. Í London hafa einnig verið haldin fjöldamörg mótmæli gegn markaðsvæðingu háskóla. Fleiri sambærileg dæmi má nálgast hér.
En hvers vegna eru stúdentar að berjast gegn markaðsvæðingu menntunar? Er ekki bara fínt að einhver fyrirtæki séu tilbúin til að borga fyrir fína skjávarpa og upphituð strætóskýli?
Hér á landi hefur lítil gagnrýnin umræða farið fram um markaðsvæðingu menntunar. Það er kannski ekki síst vegna þess að það er svo góðri dúsu stungið upp í fólk þegar kemur að henni; með markaðsvæðingu er hægt að kenna fleiri kúrsa, við fáum ódýran bjór, það eru flottari fyrirlestrarsalir til staðar, nemendafélögin hafa efni á strippurum í partíin, rassinn frýs ekki af okkur meðan við bíðum eftir strætó, við verðum öll heilalausar bikkjur.
En hvað kostar markaðsvæðingin stóran hluta af gagnrýnni hugsun? Hvernig eiga kennarar að gagnrýna stórfyrirtæki ef þau borga launin þeirra? Hvernig er hægt að ástunda gagnrýna hugsun gegn aðilum sem styrkja menntunina sem á að ýta undir þessa gagnrýni? Hvernig geta stúdentar gagnrýnt mannréttindabrot Rio Tinto á sama tíma og stúdentablaðið tekur við styrkjum frá því? Hvernig geta stúdentar auglýst Goldfinger[1] og á sama tíma gagnrýnt sölu á mannslíkömum? Geta kennarar fengið launaávísun sína frá Landsvirkjun og fjallað um fyrirtækið á hlutlausan eða gagnrýninn hátt?
Það eru nánast allir sammála um það að eigendur fjölmiðla hafi áhrif á það hvernig fréttaflutningur er framkvæmdur. Hvernig geta nemendur og stúdentaráð gleypt við því að markaðsvæðing innan háskólans geti ekki haft áhrif á það hvernig menntun við fáum – og þar af leiðandi á hvernig við hugsum?
Dæmi um andóf gegn markaðsvæðingu innan HÍ:

[1] Auglýsingar frá Goldfinger hafa á undanförnum árum birst í blöðum nokkurra nemendafélaga við HÍ.
