Svartsokka

hlutdrægni við mótlæga fréttamennsku

Samstaða gegn aðskilnaðarmúrnum

11/11/09 • Flokkur: Fréttir,Greinar

múrinn rifinn

Aktívistar í Palestínu tóku sig til sl. mánudag og rifu hluta af aðskilnaðarmúrsins sem byggður hefur verið milli Ísraels og Vesturbakkans í Palestínu. Um 150 manns tóku þátt í aðgerðinni. Múrinn var rifinn nálægt borginni Ramallah. Eftir stutt átök milli ísraelskra hermanna og aðgerðasinnanna náði herinn að dreifa hópnum með táragasi.

Mánudagurinn markaði upphaf samstöðuviku gegn aðskilnaðarmúrnum, sem er enn ein til raun Ísraela til að einangra palestínsku þjóðina og gera líf Palestínumanna illmögulegt. Víða lokar múrinn á möguleika fólks til að sjá sér farboða, þar sem mikið af ræktarlandi í Palestínu lendir hinum megin við múrinn. Múrinn er því notaður til þess að taka enn meira landsvæði af Palestínumönnum, en þess má geta að á milli hans og ísraelsku landamæranna eru um einn tíundi alls lands á Vesturbakkanum og um 35.000 Palestínumenn búa „vitlausu megin“ við múrinn, það er í einhvers konar einskis manns landi á milli hans og ísraelsku landamæranna. Stærð landsins sem lendir Ísraelsmegin við múrinn segir heldur ekki alla söguna því oft er um gott ræktunarland að ræða og landið er tekið með hagsmuni ísraelskra landtökubyggða í huga.

Aðskilnaðarmúrinn var byggður undir því yfirskini að vera „öryggisráðstöfun“, með það að leiðarljósi að loka meinta hryðjuverkamenn öðrum megin múrsins. Hann er því einstaklega augljóst dæmi um þær aðferðir sem stjórnvöld grípa til í þeim tilgangi að tryggja „öryggi“, en það er að loka fólk frá hvoru öðru, svelta það, einangra og koma í veg fyrir að nokkurs konar samræður eða samstaða geti átt sér stað. Í stað þess að reyna að stuðla að betri aðstæðum fólks og gera því kleift að lifa mannsæmandi lífi er allt gert til þess að sundra því með hræðlsuáróðri og lygum. Það versta sem við getum gert er að trúa lygunum og hræðast það fólk sem reiðist yfir ranglæti og heimsku. SAMSTAÐA GEGN AÐSKILNAÐARMÚRNUM!

Hér má sjá myndband af aðgerðinni á mánudaginn:

Merkimiðar: ,

1 athugasemd

Tilvísanir

  1. Svartsokka » Kvikvarp » Niðurrif aðskilnaðarmúrsins