“No borders, no nation, stop deportation”
14/12/09 • Flokkur: Fréttir,Greinar
Mótmælin í Kaupmannahöfn eru hafin að nýju á “No Borders” degi 14.desember. Fjöldi fólks er komið saman og halda á borða sem samanlagt er um 10 metra langur og 1.5 metra breiður og ganga niður Amager.
“Refugees, Migrants – Welcome. Shut down fortress Europe. No one is illegal”
Loftslagsbreytingar sem markaðshyggjan hefur ollið er stærsta orsök fólksflutnings milli svæða og mun aukast mikið á næsta áratug. Það eru ekki loftslagsbreytingarnar sjálfar sem orsaka þennan mikla flutning fólks heldur losunarheimildamarkaðurinn sem dregur ekki úr notkun jarðeldsneytis heldur eykur hana.
Stórfyrirtæki taka yfir heilu landsvæðin til þess að eingöngu að fá úthlutaðar losunarheimildir sem þeir selja svo til umhverfisspillandi fyrirtækja annarstaðar. Fólkið er platað í að skrifa undir pappíra, þeim er lofað gull og grænir skógar ásamt atvinnu fyrir alla fjölskylduna en svo er engu fylgt eftir. Það ráfar svo um, án lands til að búa á, jarðvegs til að rækta né atvinnu. Allastaðar í kringum þau eru landamæri sem loka á þau og yfirvöld landa í kring fram við þau eins og afbrotamenn.
Aðferðirnar til að framleiða carbon-credit eru margar en Svartsokka mun fara ítarlega í losunarheimildir á næstu vikum.
Svartsokka gengur nú niður Amagerbro og er umkringd tugi þúsunda kvenna, karla, kynlausra, margkynja, verkamönnum, flóttamönnum, innflytjendum og öðrum sem neita að láta þagga niður í sér og berst nú með öllum þeim sem hafa verið arðrænd og eru óvelkominn hvert sem þau fara.
“AAA… AAANTI…. ANTI CAPITALISTA “
“WE ARE HERE, WE WILL FIGHT, FREEDOM OF MOVEMENT IS EVERYBODY´S RIGHT”
