Mótmælagangan – um 50.000 einstaklingar
12/12/09 • Flokkur: Fréttir,Greinar
LEIÐRÉTTING: 100.000 manns í göngunni
Auglýst dagskrá í dag er sem hér segir:
12:00 – 13:00: Tónlist og ræður frá upphafspunktinum í Cristiansborg. Fjöldafundurinn hefst.
13:00: Gengið er frá torginu í Cristiansborg og stoppað á eftirfarandi stöðum:
13:15: Christianshavn Torv
14:00: Frankrigsgade Kirke
15:00: Sundby Idraetsplads
16:00 – 17.30: Kveikt á kertum við Bella höllina og ræðuhöld hefjast.
Klukkan 13:00 hefst mótmælagangan vegna Loftslagsráðstefnu SÞ í Kaupmannahöfn. Gert er ráð fyrir um 50 þús kvenna, karla, kynlausra og margkynja, sem koma frá 67 löndum og eru hluti af 513 hreyfingum. Þetta eru aðeins þau sem tilkynntu komu sína.
Þessar hreyfingar standa flestar fyrir andófi af einhverju tagi. Sem dæmi þá mun CJA, eða Climate Justice Action, mun “flæða” í gegnum strætin og Bike Bloc munu mæta á sérsmíðuðum Hópreiðhjólum og þannig ryðja veginn.
Hver veit hvað hinar 511 hreyfingarnar munu gera en það mun allt koma í ljós á næstu 12 tímum. Sumar hreyfingarnar eru að undirbúa sig fyrir átök aðrar hvetja til friðsamlegra mótmæla. Í dag hefur lögreglan þegar handtekið u.þ.b. 50 manns sem eru eflaust geymd í nýstárlegum minkabúrum sem Svartsokka skrifaði um fyrir stuttu. Sum þeirra með spraybrúsa og aðrar með trefil fyrir andliti. Lögreglan gerði einnig allar gasrímur fréttamanna upptækar. “Verður að ganga jafnt yfir alla” segja þeir.
Munum hversvegna við erum hérna. Nóg er komið af Cap and Trade sem var markaðshugmynd frá upphafi. Sá blekkingarleikur um að losunarheimildamarkaðurinn sjái um minnkun koltvísýrings í loftinu er lokið. Nú verður ekki fleira fólki ýtt út í jaðar svo hægt sé að ryðja land og búa til koltvísýrings-vaska og selja þannig nýjar losunarheimildir til mengandi stórfyritækja sem ekki vilja taka ábyrgð á þeim skaða sem þau hafa nú þegar ollið.
Við erum fólk, við erum dýr, við erum jörðin og við munum svara fyrir okkur!!
