Lesendabréf Svartsokku
13/11/09 • Flokkur: Fréttir,GreinarAthugasemdakerfi hafa gert mikinn óskunda á Íslandi síðustu ár. Ekki vegna þess að margir hafa orðið fyrir árásum heldur því það gefur fólki færi á því að koma sínum skoðunum á framfæri hvar sem er án þess að þurfa að styðja þær í verki. Fólk virðist dirfast þess að hanga á Smettisbókinni allan liðlangan daginn þegar yfirmenn krefjast þess að þeir vinni að skapandi störfum eins fara yfir lagerstöðu fyrirtækisins, sannfæri fólk um yfirdráttarfagnaðarerindið eða annan óbjóð sem fyrirfinnst í atvinnustarfsemi nýfrjálshyggjunnar. Svartsokka hefur þó mikla samúð með þessum einstaklingum því þeir hafa engan samastað fyrir skoðanir sínar. Varla fær þetta fólk leyfi úr vinnunni á miðjum degi til þess að slátra þeirri siðmenningu sem kom þeim þangað upphaflega. Það virðist vera borin von fyrir þessa þræla að láta heyra í sér annars staðar en á bloggsíðum og kommentkerfum fjölmiðla.
Svartsokka vil endilega koma á framfæri rödd þeirra sem hafa eitthvað til málanna að leggja og hvetur lesendur til að senda inn texta í lesendabréfið sem hægt er að skoða hér.
Netfangið er svartsokka (hjá) svartsokka.org

