Svartsokka

hlutdrægni við mótlæga fréttamennsku

Hústaka á Skólavörðustíg

26/8/09 • Flokkur: Greinar

fnbsquatHústaka á Skólavörðustíg átti sér stað fyrir nokkrum vikum þar sem hópur fólks tók yfir hús sem var yfirgefið fyrir nokkru síðan. Hópurinn hefur unnið við að gera upp húsið síðustu vikur og opnaði í dag Fríbúð þar sem fólk gefur og tekur eftir þörfum og án þess að peningar komi við sögu. Hin alræmda hústaka á Vatnsstígnum fyrr í vor er orðin að rómantískri frásögn um anarkista sem og aðra sem ákváðu að opna félagsrými og fríbúð úr yfirgefnu húsi sem vísvitandi var látið rotna af klámhundum þessa lands (hvað er klám annað en froða notuð til að fylla upp í innihaldslaust líf þeirra sem sjá ekki siðmenningu fyrir það sem hún er) en voru fjarlægð með valdi af 50 yfirvaldselskandi óeirðarlögreglumönnum sem hafa spilað of mikið af tölvuleikjum. Hægt er að lesa meira um þá hústöku hér.
Hústakan á Skólavörðustíg er hinsvegar nokkra vikna gömul og er betur búin undir átök við yfirvöld ef þau kjósa að senda óeirðapjakkana á svæðið (fyrir utan þá 15 pjakka sem sögðu upp í ágúst).
Food Not Bombs færði sína vikulegu aðgerð frá Lækjartorgi upp á Skólavörðustíg þar sem FNB er bein aðgerð gegn þeim mannréttindabrotum sem eiga sér stað þegar einstaklingar og fyrirtæki halda uppi matvöruverði í gróðaskyni. FNB og hústakan eiga þar samleið því eignaréttur byggir á sama lögmáli.
Mikil umferð var í gegnum Fríbúðina og fólk gaf sitt á meðan aðrir tóku það sem þeir þurftu.
Svartsokka hvetur þig til að fara með drasl úr geymslunni þinni í Fríbúðina og sýna í verki þá staðreynd að fólk getur séð um sig sjálft og hjálpast að án þess að gróðahyggja þurfi að klína sér á allt sem er áþreifanlegt. Núverandi kerfi býður okkur ekki upp á að skipta vörum eða þjónustu fyrir vöru og þjónustu og taka ekki þátt í peningahagkerfinu sem hefur ekkert að gera með raunverulegt gildi nauðsynja sem við þurfum til að komast af.

Merkimiðar: ,

Ekki hægt að gera athugasemd.