Grænþvottur
29/11/09 • Flokkur: GreinarÞað getur verið afar athyglisvert að sjá það hvernig stórfyrirtæki nota svokallaðan grænþvott til þess að kaupa sér velvild. Svartsokka rakst nýlega á auglýsingu frá einu þekktasta grænþvottsfyrirtæki heims, shell, á vefsíðu tileinkaðri umhverfismálum. Þar reynir fyrirtækið að bæta ímynd sína, sem eins og margir vita, er ansi brotin eftir framgöngu Shell í Nígeríu, þar sem fyrirtækið varð uppvíst af margþættum umhverfisspjöllum og mannréttindabrotum.
Að sjálfsögðu vill olíufyrirtæki á borð við shell ekki að fólk hætti að nota olíu, því þá hættir fyrirtækið að græða. Þessvegna reynir það að láta fólk halda að það sé að reyna að gera eitthvað í því að minnka útblástur gróðurhúsalofttegunda, eins og sjá má hér. (Varúð; myndbandið getur valdið klígju).
Í grænþvottsherferðinni reynir shell að telja almenningi trú um það að lausnina á „eldsneytisvandanum“ (ofneyslunni) sé að finna í lífefnaeldsneyti, vökvagerðum kolum og hráolíu unna úr sandi og þykist fyrirtækið vera að „vinna að lausnum“ til að geyma kolefni neðanjarðar. Að sjálfsögðu munu svona fáránlegar „lausnir“ ekki breyta neinu þae sem hinar raunverulegu breytingar munu aðeins fást með því að ofurvald olíufyrirtækjana verði brotið á bak aftur en það vill olíurisinn að sjálfsögðu ekki.
Aukin notkun lífefnaeldsneytis mun einungis valda því að aukið landsvæði verður brotið undir ræktun hráefna í slíka framleiðslu. Á meðan er það landsvæði ekki notað í að rækta fæðu fyrir fólk sem auka mun hungur. Eins má ætla að hin aukna þörf fyrir landsvæði valdi eyðingu skóga, en eyðing skóga er álitin bera ábyrgð á 40% allrar aukningar kolefnis í andrúmsloftinu nú þegar. Það að vinna olíu úr sandi breytir að sjálfsögðu engu þar sem slík vinnsla er ekkert minna mengandi en annars konar olíuvinnsla og veldur mengun bæði í andrúmslofti og vatni, auk þess að auka magn gróðurhúsalofttegunda og valda aukinni eyðingu skóga.
Hér er því á ferðinni dæmigerður grænþvottur, reynt er að bæta ásýnd fyrirtækja með slæmt orðspor með því að notast við orðræðu um minnkun útblásturs, lausnir á hlýnun jarðar og svo framvegis en án þess að nálgast hina raunverulegu rót vandans.

