Svartsokka

hlutdrægni við mótlæga fréttamennsku

Fullyrðing um anarkista

09/9/09 • Flokkur: Fréttir,Greinar

RökleysaÍ morgun var fjallað um á mbl.is að hópur fullorðna einstaklinga hafi skemmt vinnuvélar á byggingarsvæði nýja Háskólans í Reykjavík við Öskjuhlíð. Fréttaflutningur Morgunblaðsins (mbl.is þótt fólk virðist vilja slíta þetta í sundur) var ekki upp á marga fiska rétt eins og vanalega. Svartsokku langar aðeins að benda á fáránleikann í uppsetningu fréttarinnar.

“Garðar Þorbjörnsson eigandi Urðar og grjóts segir líklegast að einhverjir anarkistar standi að baki skemmdarverkum í Öskjuhlíð í nótt. Hann segir engin börn hafa verið að verki heldur fullorðnir menn með öflugar tangir. Slík verkfæri liggi ekki á glámbekk þar sem einhver vegfarandi geti gripið til þeirra.”

——————-
Premise 1: Fullorðnir menn skemma vinnuvélar
Premise 2: Allir fullorðnir menn eru ‘líklega’ anarkistar:

Conclusion: Anarkistar skemma vinnuvélar.
——————–

Að fréttamenn morgunblaðsins skuli hafa þetta eftir eigandanum og setja þetta svona fram er allgjörlega siðblint gefið að mbl yfirlýsir sig sem hlutlausan miðil.  Þetta er mjög vel framsettur subliminal áróður af hálfu morgunblaðsins þar sem eigandinn veit EKKERT hver gerði þetta né lögreglan samkvæmt fréttinni sem var skrifuð fyrr um morguninn.

Merkimiðar: ,

Ekki hægt að gera athugasemd.