COP15
07/12/09 • Flokkur: Greinar
Í dag hófst loftslagsráðstefnan í Kaupmannahöfn opinberlega. Auk stjórnmálamanna, þjóðarleiðtoga og fræðimanna streyma þangað aktívistar, fólk sem veit að stjórnmálamönnum er ekki treystandi fyrir jafn mikilvægum málefnum eins og loftslagsbreytingum. Enda eru þeir nú þegar farnir að sýna fram á viljaleysi til breytinga.
Margir mótmælendanna upplifa það að lausnirnar sem stjórnmálamennirnir vilja ræða séu falskar lausnir. Það eina sem ræða á eru leiðir til þess að lengja í hengingarólinni í stað þess að skera á hana, leiðir til að fá fólk til að kaupa “grænt” til að viðhalda neyslu og hagvexti. En eins og kemur fram hér þá er það engin lausn. Lausnina er ekki að finna nema með allsherjar afnámi kapítalismans og félagslegu réttlæti.
Enn lifir umræðan um það hvort loftslagsbreytingar séu raunverulegar og hvort hlýnun jarðar sé eins hröð eins og talið hefur verið. Þessi umræða lifir góðu lífi í kjölfar þess að upp komst um að vísindamenn sem stundað hafi loftslagsrannsóknir hafi hnikað til niðurstöðum rannsókna sinna.
Það skiptir þó ekki meginmáli því við vitum öll af eyðileggjandi áhrifum stóriðju á náttúruna og samfélög, til þess að öðlast þá vitneskju er nóg að draga andann og horfa í kring um sig. Við vitum af mengun stórfyrirtækja, af uppþornun drykkjarvatns af þeirra sökum og af áhrifum þeirra á eyðingu skóga. Við vitum líka að olíulindir klárast brátt og taki lífefnaeldsneyti við án nokkurra breytinga á neyslumunstrum muni það taka stór landsvæði af fólki sem hefur lifibrauð sitt af þeim.
Við vitum að hagvöxtur og umhverfisvernd mun aldrei fara saman og við vitum líka að sá stjórnmálamaður sem neitar að lofsyngja hagvaxtarguðinn nær ekki endurkjöri.
Við vitum þetta allt og þessvegna er Svartsokka á leiðinni til Kaupmannahafnar, grímulaus og berskjölduð, með vitneskjuna eina að vopni.
Nánar:
http://www.smugan.is/pistlar/adsendar-greinar/nr/2585
http://www.freedompress.org.uk/news/2009/11/29/cop15-notes-from-below/
