Svartsokka

hlutdrægni við mótlæga fréttamennsku

Bretland: Eftirlit með minnihlutahópum eykst

26/10/09 • Flokkur: Fréttir,Greinar

Ríkisstjórn Bretlands hefur sett á fót verkefni til að koma í veg fyrir að ungir múslimar séu „lokkaðir“ inn í öfgatrú. Fréttir hafa hins vegar borist um að hinn raunverulegi tilgangur verkefnisins sé að fá starfsfólk félagsmiðstöðva og skóla til að njósna um skoðanir fólks. Höfundur skýrslu um efnið segir verkefnið ýta undir fordóma og ala á ótta gegn múslimum.

Verkefnið, sem nefnist Prevent (stytting á Preventing Violent Extremism programme) snýr að því að safna upplýsingum um fólk sem álitið er hafa „öfgafullar skoðanir“. Hvað það er að hafa öfgafullar skoðanir er ekki skilgreint af hálfu yfirvalda – en svo virðist sem það sé nóg að vera múslimi til að vera undir eftirliti. Verkefnið ýtir því undir fordóma  og ótta gagnvart þeim, samkvæmt nýlegri skýrslu um málið.

Fréttir herma að starfsmenn félagsmiðstöðva í London hafi verið undir þrýstingi frá lögreglunni um að láta í té upplýsingar um unga múslima, ella yrði dregið úr fjárframlögum til félagsmiðstöðvanna. Þessum upplýsingum átti að veita inn í miðlæga gagnagrunna lögreglunnar. Dæmi eru um að þeir starfsmenn sem neiti að taka þrátt í þessum persónunjósnum hafi orðið fyrir rógburði um að þeir styðji öfgamenn. Í öllum tilfellum voru þessir starfsmenn spurðir út í trúarskoðanir og pólitískar skoðanir þeirra sem þeir unnu með.

Dæmi um þær persónunjósnir sem hafa átt sér stað undir yfirskini Prevent verkefnisins ná allt frá upplýsingum um kynlífshegðun einstaklinga til trúnaðarupplýsinga úr geðheilsuverkefnum. Eitt dæmi hermir að nemandi sem sótti fyrirlestur um málefni Gaza var dæmdur sem „mögulegur öfgamaður“ og rannsakaður af stjórnvöldum í kjölfarið. Níu ára gamall drengur var einnig rannsakaður af stjórnvöldum og grunaður um „öfgamennsku“. Samkvæmt frétt Guardian var hann heilaþveginn (e. deprogrammed) í kjölfarið.

Innanríkisráðuneyti Bretlands heldur því fram að verkefnið snúist ekki um njósnir, heldur um það að „vernda viðkvæma einstaklinga og takast á við ástæður öfgamennsku“. Þessi verndun virðist snúa að því að taka út einstaklinga sem eru álitnir hafa róttækar skoðanir, njósna um þá og reyna að hafa áhrif á þá í þá veru að breyta þessum skoðunum þeirra til þess sem talið er “rétt” af breskum stjórnvöldum. Með þessu bendir ráðuneytið á að það sé ekki að stunda njósnir heldur einungis saklausan heilaþvott.

Á sama tíma er ekki tekist á við raunveruleg vandamál breskra múslima, sem felast í ýmsu mótlæti sem þeir verða fyrir. Dæmi um vandamál af þeim toga er að þurfa að kljást við meiri fátækt en aðrir Bretar auk hinna síendurteknu fordóma sem meðal annars birtast í ofangreindum persónunjósnum.

Meira um efnið:

Institute of Race Relation: Spooked: How not to prevent violent extremism

The Guardian: Government anti-terrorist strategy ‘spies’ on innocent

Al Jazeera: London denies UK Muslim spy charge

Merkimiðar: , ,

Ekki hægt að gera athugasemd.