Binayak Sen, læknir og aktívisti
30/12/10 • Flokkur: Greinar
Indverski læknirinn og aktívistinn, Binayak Sen, var dæmdur í lífstíðarfangelsi í desember vegna meints sambands hans við uppreisnarhópa Maóista sem vilja koma ríkisstjórninni frá. Binayak Sen var handtekinn í maí árið 2007 af Chattisgarh lögreglunni fyrir brot á sérstökum lögum um öryggi almennings frá árinu 2005 og Unlawful Activities (Prevention) Act frá árinu 1967. Að sögn Sen eru yfirvöld að þagga niður í honum vegna gagnrýni hans á Salwa Judum, sjálfskipaðar lögreglusveitir sem hafa staðið fyrir fjöldamorðum á íbúum þorpa frumbyggja til að rýma fyrir báxít- og demantavinnslu stórfyrirtækja.
“In Chhattisgarh, the PUCL [Peoples’ Union for Civil Liberties] has been in the forefront of exposing the atrocities of the police. Atrocities by men in uniform against vulnerable sections continue to be a serious problem in the state.”
Lögreglusveitirnar eru studdar af yfirvöldum og er yfirlýst hlutverk þeirra að brjóta niður uppreisnarhópa Maóista sem kallast Naxalites. Lögreglusveitin hefur hinsvegar verið uppvís að því að beita hryðjuverkum gegn fólki í skjóli valds síns. Yfirvöld settu hópinn á laggirnar árið 2005 til að uppræta Naxalíta hvar sem þá væri að finna. Þessar umdeildu lögreglusveitir voru settar á laggirnar á afar „heppilegum“ tímapunkti því yfirvöld hafa lofað yfir 85 milljarða dollara fjárfestingum í héruðunum Chhattisgarh, Orissa, Jharkhand, Karnataka, og Maharashtra. Landsvæðin eru stór og bestu báxítfjöll heims er þar að finna en einnig fjölda Adivasi frumbyggja sem hafa sitt lífsviðurværi af landinu.
“However, an investigation led by the PUCL and involving several other Human Rights organizations revealed that it was in reality a state sponsored and state funded as well as completely unaccountable vigilante force, to which arms were provided by the government. The activities of the Salwa Judum have led to the emptying of more than 600 villages, and the forced displacement of over 60,000 people. Concerns regarding the activities of the Salwa Judum have been expressed by several independent organizations including the National Human Rights Commission. International organizations like the UNICEF have also voiced serious concern and have invited me to dialogue with them about the restoration of normalcy in the region affected by Salwa Judum.”
Sen, sem er menntaður barnalæknir, lítur ekki aðeins á sig sem lækni heldur einnig sem aktívista og segir hann að nauðsynlegur þáttur starfsins sé að fræða frumbyggja um borgaraleg réttindi sín. Samtökin MFC (Medico Friend Circle) voru stofnuð í lok 7. áratugarins með það markmið að efla samvinnuheilsugæslu í Chattisgarh. Lítil áhersla á uppbyggingu heilbrigðiskerfis er þáttur í stefnumótun stjórnvalda og auðlæknanlegir sjúkdómar tengdir fátækt eru afurðir hennar. Samkvæmt Alþjóðabankanum þá lifa um 80% Indverja á minna en 2 dollurum á dag.
MFC hrintu í framkvæmd samvinnu-heilsugæslu í Chattisgarh stuttu eftir að Sen kom þangað árið 1981. Hann vann með Adivasi frumbyggjum í að þróa eigin heilsugæslu. Íbúar fengu þjálfun sem 1.stigs hjúkrunarfræðingar og í stað þess að styðjast við vestræn læknavísindi var horfið aftur til að nýta þekkingu og hefðbundin lyf frá héraðinu. Þetta var verkefni fólksins og voru allir hvattir til að læra undirstöðuatriðin í hjúkrun.
„During the two years I worked there [a field based health programme at the Friends Rural Centre, Rasulia in Hoshangabad, MP.], I worked intensively in the diagnosis and treatment of Tuberculosis and understood many of the social and economic causes of disease. I was also strongly influenced by the work of Marjorie Sykes, the biographer of Mahatma Gandhi, who lived at the Rasulia centre at that time.”
Mikill skortur var þó á betri aðstöðu til að lækna berklasjúklinga. Meðlimir í stéttarfélagi námuverkamanna, Chattisgarh Mines Shramik Sangatan (CMSS), hófust handa við að byggja heilsugæslu sem myndi bæta aðhlynningu á berklasjúklingum en einnig bjóða upp á tækifæri fyrir fólk til að taka hjúkrunarfræðimenntun sína á næsta stig. Leiðtogi CMSS, Shankar Guha Niyogi, var síðar handtekinn fyrir „uppreisnina“ sem fólst í byggingu heilsugæslu án aðkomu ríkisins.
Binayak Sen og eiginkona hans, Ilina, tóku við þar sem frá var horfið á heilsugæslunni í Chattisgarh. Bygging virkjanna hafði drekkt stórum landsvæðum og fjöldi ættbálka hafði misst landsvæði sín og lífsviðurværi í kjölfarið. Hugmyndafræði Binayak byggir á þeirri skoðun hans að heilbrigðisþjónusta er pólitísk í eðli sínu. Með því að bjóða upp á heilsugæslu og hjúkrunarnám til íbúa svæðisins er verið að vinna á ákveðnum umbótum á kerfi sem ekki má hreyfa við og þ.a.l. verið að upphefja byltingarkenndar hugmyndir. Með því að veita menntun til verkalýðsins er vissulega verið að ógna stigveldinu sem ríkið byggir á.
Aukin umræða um mannréttindi frumbyggja urðu óhjákvæmilegur þáttur í hugmyndum um breytta heilsugæslu. Í héraði eins og Chattisgarh þar sem yfirvöld stunda gífurleg hryðjuverk á innfæddum í skjóli baráttu sinnar gegn uppreisnarherjum Maóista hefur landi verið rænt af íbúum og afhent einkareknum iðnaðarfyrirtækjum.
Binayak Sen er sakaður um að „hvetja til hernaðar“ gegn ríkinu og fyrir að tengjast uppreisnarhópi Maóista í landinu. Engar haldbærar sannanir hafa verið settar fram sem styðja við þessar ásakanir annað en eitt skjal sem skyndilega birtist í réttarsalnum. Einnig var lagt hald á tölvu Sen sem svo fékk hana tilbaka án fjölda myndskeiða sem hann hafði tekið við þolendur ofbeldis af hálfu lögreglusveitanna. Amnesty og önnur mannréttindasamtök hafa fordæmt dóminn og hvetja yfirvöld í Indlandi að fellar niður allar ákærur.
Sen er í haldi í borginni Chennai og hefur mannréttindasamtökum og stuðningsfólki Sen verið neitað af lögregluyfirvöldum að boða þar til friðsamlegra mótmæla þann 31. desember. Stúdentar, lögfræðingar, aðgerðarsinnar, þingmenn og læknar voru meðal þeirra sem límdu svartan borða fyrir munn sér til að mótmæla þögguninni sem á sér stað.
Útfrá sjónarhóli yfirvalda og markaðarins eru aðgerðir yfirvalda gegn Sen mjög skiljanlegar. Í ágúst á þessu ári unnu Adivasi frumbyggjar í héraðinu Orissa mikinn sigur gegn breska álrisanum Vedanta eftir áratuga baráttu, þrátt fyrir að mjög hafi á þá hallað fram að því. Námuvinnslan hefði valdið þjóðarmorði á 8000 frumbyggjum, mengað grunnvatn, breytt árfarvegum og tortímt tæplega 750 þúsund hektara skóglendi ásamt öllu vistkerfi þess. Salwa Judum málaliðar markaðsaflanna ásamt yfirvöldum eru markvisst að undirbúa héraðið fyrir frekari landtökur og senda með þessum dómi sterk skilaboð til þeirra sem ætla sér að opna munninn og gagnrýna morðsveitirnar. Það er ljóst að hver sem tekur afstöðu með fólkinu gegn gróðamaskínunni og vekur athygli eignast vopnaða fjendur sem hafa skotleyfi á hvað sem hreyfist.
http://www.issuesinmedicalethics.org/153ed104.html
http://www.binayaksen.net/
http://mrzine.monthlyreview.org/2007/amr140607.html
http://online.wsj.com/article/SB10001424052970203418804576038944286704916.html
http://indianvanguard.wordpress.com/2010/12/28/dr-binayak-sens-statement-to-the-court/#more-7510
Das, Samarendra. Out Of this Earth. Orient Black Swan. Bretland.
