Námufyrirtæki með lögreglu í vasanum
13/8/10 • Flokkur: Fréttir
Tveir leiðtogar Dongria Kondh ættflokksins í Orissa héraði á Indlandi voru teknir höndum og yfirheyrðir af óeinkennisklæddum lögreglumönnum. Mennirnir tveir, Lado og Sana Sikaka var rænt af 15 vopnuðum mönnum að morgni 9.ágúst sl. Það var ekki fyrr en mennirnir fóru með Lado og Sana á lögreglustöð að þeir áttuðu sig á því að þeir
höfðu verið handteknir af óeinkennisklæddum lögreglumönnum. Þeir höfðu verið áberandi í baráttu gegn nýrri báxítnámu í Orissa héraði. Morguninn sem þeim var rænt voru þeir á leið á ráðstefnu þar sem umhverfisverndarsinnar og baráttufólk fyrir réttindum frumbyggja ætluðu að funda um mögulegar afleiðingar námunnar.
Sana Sikaka var sleppt 12 tímum eftir að hann var handsamaður en Lado var haldið í tvo sólahringa á lögreglustöð þar sem hann var yfirheyrður og barinn af lögreglu, og látinn skrifa undir einhver skjöl en hvaða skjöl það voru gat hann ekki vitað því hann er ólæs. Spurningum líkt og “hvers vegna viljið þið ekki fá námu” og “hvers vegna eruð þið á móti [námufyrirtækinu] Vedanta” var dembt yfir þá á meðan þeir voru í varðhaldinu, sem er talið hafa verið leið til að hræða þá til hlýðni. Fólk í héraðinu hefur áður talað um að lögregla sé notuð til að ógna þeim en hún hefur sjaldnast gengið svo langt að handtaka þekkta þorpsleiðtoga og halda þeim án nokkurrar ákæru.
Námufyrirtækið Orissa Mining Corporation er eigandi námunnar en það er undirfyrirtæki breska fyrirtækisins Vedanta, en nánar má lesa um athafnir Vedanta í Orissa héraði í 2.tbl Rósta (www.rostur.org). Hægt er að kynna sér afbrot fyrirtækisins og þjáningu sem það hefur valdið á vef Saving Iceland
