Svartur Svanur #3
21/3/10 • Flokkur: Fréttir
Nýtt tölublað af Svörtum Svan hefur litið dagsins ljós, þykkari, kröftugri og beittari. Þetta er 3.tbl og er bundið sem bók, pakkfull af áhugaverðu efni. Í gær varð Svartsokka sér úti um eintak á Food Not Bombs þar sem Andspyrna er með and-kapítalískt efni til útláts. Meðal greina í blaðinu er Grænþvottur er nýja sjónarspilið en hún var birt á netinu fyrir jól. Barátta Helga Hóseasonar og hverju hann raunverulega barðist gegn er vel útskýrt og kominn tími til því fjölmiðlar gerðu hann að píslarvotti eftir að hann lést.
Aðgerðir hljóma hærra en orð er grein þýdd að hluta til úr texta eftir Derrick Jensen þar sem talað er um viðbrögð fólks við misþyrmingu af hálfu arðræningja. Jensen nefnir að hugtökin ofbeldi og framleiðsla séu samheiti. Innan valdapýramídans er framleiðsla notað af yfirvöldum og einkafyrirtækjum þegar frumbyggjar og aðrir minnihlutahópar eru rændir og myrtir en þegar spyrnt er við fæti fær heimurinn að heyra að ofbeldi hafi verið beitt af hálfu innfæddra.
Lögregla og samfélag var sérstaklega áhugaverð. Andúð á lögregluþjónum er lögð til hliðar og hlutverk stofnunarinnar greint út frá einkarétti ofbeldis og þannig mjög tengd Aðgerðir … eftir D. Jensen.
Lögreglunni er ætlað að framfylgja lögum.þeir sem ákveða landslög mynda annan lítinn og félagslega afmarkaðan hóp sem er nátengdur þeim hæst settu innan valdapýramídan efnahagskerfisins. Eðli tengslanna milli þessara tveggja félagshópa sýna sig þegar lögbrot eiga sér stað meðal þeirra hátt settu; lögreglan getur ekki beitt sér gegn yfirmönnum sínum. Þar með er flett ofan af tilverugrunni lögregluembættisins því opinbert markmið embættisins er að lögum sé framfylgt.
Í greininni Falldýfa Sundkappans er fjallað um aðdraganda óeirðana í Grikklandi. Svartsokka vil benda á greinina Róstur í Grikklandi sem birtisti í Róstum þar sem fjallað er um óeirðirnar sjálfar. Einnig hvetur Svartsokka ykkur lesendur til um að skoða óháða miðla sem birta efni um það pólitíska ástand sem ríkir í Grikklandi. Háðir miðlar eru einfaldlega of uppteknir að tala um skuldastöðu landsins og hættuna sem stafar af Evrunni ef hagkerfið þar hrynur.
Tískukistinn, saga Cristianíu, ritdómar, ljóð og fleira.
Það er eitthvað bogið við fyrirbærið siðmenning og ákefð vestrænna ríkja að koma henni á líkt og ákefð landkönnuða að koma á kristinni trú í “nýja heiminum”. Sumir myndu kalla þessa ákefð þróun. Svartur Svanur gerir þessari ákefð góð greinaskil.
