Spilltir valdhafar myrtir
25/8/10 • Flokkur: Fréttir
Átök halda áfram í Mogadishu, höfuðborg Sómalíu, milli hermanna stjórnvalda og íslamskra uppreisnarmanna, þriðja daginn í röð.
Sex óbreyttir borgarar féllu í sprengingu í nótt og a.m.k. 18 eru særðir eftir átökin síðasta sólarhring.
AFP fréttastofan skýrir frá því að sómalskur fréttamaður hafi lent í víglínunni og verið skotinn til bana.
Hann er annar fréttamaðurinn sem fellur í átökum í Sómalíu á þessu ári.
Í átökunum nú er talið að 65 manns hafi látist, þar af 30 þegar uppreisnarmenn réðust á hótel í Mogadishu í gær.
Ofangreind grein var birt á mbl.is miðvikudaginn 25.ágúst.
Al Shabab er hreyfing sem lýst hefur yfir heilögu stríði gegn vestrænni íhlutun í landinu og má þá sérstaklega nefna Sameinuðu þjóðirnar og Frjáls félagasamtök* (NGO´s). Fréttin er eflaust þýdd lauslega af erlendri síðu og sneydd allri mögulegri gagnrýni eða sett í einhverskonar sögulegt samhengi. Það sem mbl.is setur ekki fram í lok fréttarinnar er að á þessu hóteli voru stjórnmálamenn og aðrir valdhafar (aljazeera.net) og beindist aðgerðin að þeim.
Ef stjórnvöld í Sómalíu eru skoðuð aðeins nánar þá bera þau þann óheppilega titil að vera spilltasta ríkisstjórn á hnettinum, eða í 180. sæti (Transparency International’s Corruption Perception Index). Ríkisstjórnin reiðir sig ekki á reglulegar tekjur í formi skatta né annar greiðslna og 90% af tekjum þjóðarbúsins koma frá frjálsum framlögum, hvaðan sem þau nú koma. Það er meira af byssukúlum í Sómalíu en matur og lyf samanlagt. Helmingur Mataraðstoðar SÞ og World Food Program er reglulega stolið af hermönnum ríkisins og samkvæmt nýlegri skýrslu SÞ er talið að yfirvöld séu í samstarfi við sómalska sjóræningja.
SÞ og NGO samtök hafa hinsvegar verið mikið gagnrýnd fyrir að tala ekki opinskátt um nöfn stjórnmálamanna í Sómalíu sem hafa orðið uppvísir að spillingu og sú þöggun hamlar verulega möguleikanum á einhverjum umbótum í landinu. En er umbætur endilega af hinu góða? Oft er kerfið svo rótgróið að það þarf að bylta ríkjandi kerfi algjörlega og reisa nýtt, byggt á nýjum hugmyndum, eða gömlum. Það getur orðið erfitt að reyna að réttlæta morðin sem framin voru á valdhöfum landsins í gær. Valdhafar landsins hafa orsakað mikla fátækt og þ.a.l. ótímabæran dauða fólks með stríðsherra-stefnu sinni. Það er ekkert sem tryggir að ef uppreisnarmenn komast til valda að ástandið skáni en það verður varla verra.
Það er mjög auðvelt að taka einn atburð og gera hann að ódæðisverki með því að aðskilja raunverulegt samhengi hans. En til hvers að útskýra hlutina eitthvað nánar? Svona frétt verður að vera stutt og krassandi svo fólk nenni að lesa þær og þurfi ekki að mynda sér skoðun á málinu. Hver nennir eiginlega að lesa einhverjar langlokur um pólitíska sögu Sómalíu og þurfa svo að taka afstöðu sem er hvort eð er óþægileg fyrir alla?

