Ákærur og samsæri
07/8/10 • Flokkur: Fréttir
Samsæri gegn aðgerðarsinnum af hálfu yfirvalda er alkunnugt fyrirbæri. Opinberir starfsmenn, lögregla og skipaðir verjendur eru oft hluti af slíku leikriti sem sett er á svið í þeim tilgangi að koma fólki úr umferð eins lengi og mögulegt er því það ógnar gildum (auðvalds)samfélagsins. Ákærurnar eru oft ekki í neinu samhengi við atburðinn og fjöldi þeirra til þess eins gerður að víkka refsirammann.
Crimethinc hefur tekið saman nokkur mál sem voru sótt gegn aðgerðarsinnum þar sem reynt er að ákæra á grundvelli laga sem hafa ekkert með athæfið að gera.
