Svartsokka

hlutdrægni við mótlæga fréttamennsku

Samarendra Das á íslandi

02/9/10 • Flokkur: Fréttir

EDDA-öndvegissetur og Stofnun Sæmundar fróða við Háskóla Íslands bjóða til umræðufundar um áhrif áliðnaðarins á samfélög og efnahagslíf, föstudaginn 3. September, kl. 14-15.30.

Samarendra Das er annar höfunda bókarinnar Out of This Earth: East India Adivasis and the Aluminium Cartel, sem hefur verið kölluð svartbók áliðnaðarins. Skoðun höfunda er sú að álfyrirtækin séu keyrð áfram af alþjóðlegum auð- og einokunarhringjum sem sam…anstanda af námufyrirtækjum, fjárfestingarbönkum, ríkisstjórnum, málmkaupmönnum og
vopnaframleiðendum. Einnig lýsa þeir hvernig álframleiðslufyrirtækin arðræna samfélög og steypa þeim í vítahring skulda. Samarendra Das mun hefja fundinn með því að gera grein fyrir helstu niðurstöðum bókarinnar.

Í ljósi rannsókna Das er vert að spyrja hvort það sé samband milli bágs ástand efnahagslífs hér á landi og byggingu virkjana og álvera eða hvort bygging fleiri álvera sé sú lyftistöng sem íslenskt efnahagslíf þurfi á að halda. Jón Þór Sturluson, dósent við Viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík, mun bregðast við sjónarmiðum Das og hefja umræður um þau.

Meira:

Námufyrirtæki með lögreglu í vasanum

Adivasi

Merkimiðar: , , , ,

Settu inn athugasemd