Svartsokka

hlutdrægni við mótlæga fréttamennsku

RVK9 – miðvikudaginn kl. 8:30

06/9/10 • Flokkur: Fréttir

Sirkusatriði yfirvalda í kringum RVK9 mun halda áfram á miðvikudaginn klukkan 8:30. Tímasetningin hefur verið færð út fyrir opnunartíma héraðsdóms svo lögreglan geti tekið sér stöðu í salnum en aðstandendum er haldið fyrir utan. Eins og Ragnar Aðalsteinsson hefur minnst á þá er búið að dæma fólkið fyrirfram þegar lögregla er viðstödd í réttarsalnum. Þegar fjölmiðlar greina frá því að almenningi var meinaður aðgangur og sérsveitarmenn voru inn í réttarsal er búið að dæma fólkið fyrirfram, eins og Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður hefur ítrekað sagt. Þetta gefur þá mynd að fólkið sé algjörlega galið og sérsveitin þurfi að vera viðstödd til að hafa hemil á því. Það þarf eitthvað mikið að gerast til að samstaðan sem hefur myndast í máli nímenninganna rofni því upploginn vitnisburður þingvarða og lögreglu hefur verið afhjúpaður.

En hver getur mætt og sýnt samstöðu klukkan 8:30?

Talaðu við vinnuveitandann þinn, slepptu því að fara í fyrirlesturinn í skólanum, finndu leið til að mæta því aldrei hefur misbeiting valds verið eins opinber og nú. Með því að mæta fyrir framan héraðsdóm með fána, lúðra, trommur, o.s.f.v. geturðu tekið þátt í sirkusnum. Hljóðfæri eru svo sannarlega bönnuð inn í Héraðsdóm en hvað er sirkus án tónlistar?

Stuðningsyfirlýsing

Merkimiðar: , , ,

Settu inn athugasemd