Tilefnislausar handtökur – engar aðvaranir
12/12/09 • Flokkur: Fréttir
“Handtökurnar voru allgerlega óþarfar” segja vitni sem horfðu á lögregluna handtaka yfir 400 manns í fyrirbyggjandi aðgerð til að koma í veg fyrir óeirðir. “Fólkið var með trefla fyrir munni og var þessvegna handtekið” segir talsmaður lögreglu. Svartsokka vil taka það fram að hitastigið klukkan 16:00 var -2 gráður celsius.
Lögreglan tilkynnti engum að handtökur væru yfirvofandi heldur réðust inn í göngunna og tóku fólk niður. Eldra fólk og börn voru í hópnum. Fólk fékk ekki tækifæri til að taka niður treflana né færa sig heldur kom þetta allgjörlega úr heiðskýru lofti.
Nú eru 3 klst síðan þau voru handtekin og enn sitja þau í -3 gráðu frosti eins og hjörð í klofi hvors annars. Öllum klósettferðum hafa einnig verið neitað.
uppfærsla: Fólki er loksins hleypt á klósettið.
