Svartsokka

hlutdrægni við mótlæga fréttamennsku

Mótmælendur dæmdir fyrir fram af fjölmiðlum

21/1/10 • Flokkur: Fréttir

Althingi-tomtÍ kjölfar ákæru ríkissaksóknara á hendur níu manns sem reyndu að brjóta sér leið inn á þingpalla Alþingishússins fyrir rúmu ári er athyglisvert að skoða hvernig fréttamiðlarnir taka á málinu. Um er að ræða ryskingar sem meðal annars ullu líkamlegum meiðslum. Að vanda er fréttaflutningur af atburðinum einhliða og óljós, enda eingöngu tekinn upp úr fullyrðingum ákæruvaldsins um hvað átti sér stað.

Af fréttum má einna helst skilja að þau sem ákærð voru hafi ráðist á þingið, veist að fólki af ástæðulausu og bitið það af ásetningi. Ekki virðist heldur ljóst hvernig þessi meiðsl áttu sér stað. Réðust mótmælendurnir að þessum þingvörðum/lögreglumönnum og hrintu þeim eða bitu af hreinni mannvonsku eða voru þetta varnarviðbrögð þeirra við því að vera snúin niður?

Ennfremur kemur mjög óljóst fram hvernig atburðirnir áttu sér stað. Samkvæmt fréttum réðust mótmælendur á þingvörð sem var að reyna að loka dyrum. Ekki fylgdi sögunni að loka átti dyrunum til þess að meina mótmælendunum aðgang að þingpöllum, sem er réttur hvers einstaklings að fá að fara á. Svo virðist sem upp úr því hafi einhver mótspyrna átt sér stað af hálfu þingvarða sem reyndu að halda fólkinu frá því að komast á pallana. Afleiðingarnar urðu þær að einhver þingvarðanna slasaðist en þeir hafa hvorki þjálfun né getu í að halda fólki frá með líkamlegu valdi. Hvort það hafi verið rökrétt ákvörðun þingvarða að banna þessu fólki aðgang að pöllum Alþingis hefur ekki heldur komið fram í fréttaflutningi. Ef þeir hafa vald til að ákvarða hverjum skal hleypt inn og hverjum ekki hljóta þeir einnig að þurfa mannafla og/ eða aðbúnað til að standa við slíkar ákvarðanir. Í öllu falli ættu þeir að leita sér aðstoðar ráði þeir ekki við aðstæður.

Að kæra atburðinn skv. 100 grein hegningarlaga má teljast harkaleg nálgun á málinu. Sú grein virðist fremur eiga við um einhvers konar skipulagða árás á stofnunina Alþingi heldur en tilraun nokkurra einstaklinga til að nýta sér lögbundinn rétt sinn til þess að mæta á þingpalla. Þessi grein getur falið í sér allt frá eins árs fangelsisdómi til ævilangs dóms, séu „sakir miklar“. Hvað telst til mikilla saka virðist þá fara eftir mati dómara hverju sinni þar sem það er ekki nánar skilgreint.

Málið vekur ennfremur upp spurningar um tilgang þingpalla. Svo virðist sem fólk megi einungis fara þangað til að þegja og hlusta, líkt og einhver hafi löngun til að hlusta á fagurgala stjórnmálamannanna sér til ánægju. Sé tilgangurinn sá að veita þessum lagasetjandi gölurum aðhald með því að láta heyra í sér virðist sem það réttlæti það að dyrum sé skellt á viðkomandi.

Það sem eftir stendur er sú spurning hvers vegna þessu tiltekna fólki var ekki hleypt upp á pallanna þennan tiltekna dag? Þingverðir mega ákvarða hámarksfjölda fólks á pöllunum en ekkert segir til um að þeir hafi vald til að ákveða hverjir það eru sem fá að komast að. Ekki hefur komið fram hvort þingpallarnir voru fullir þegar loka átti fólkið úti. Því virðist fátt vitað um ástæðu þess að þessum einstaklingum var bannað að fara á pallana.Var þeim mætt með andúð og skellt á þau hurðum því þau litu út á einhvern afgerandi hátt? Komu þau inn með þann yfirlýsta tilgang að ætla sér ekki að þegja á pöllunum? Var ef til vill engum hleypt inn þegar þessi umræða átti sér stað og ef svo var, hvers vegna?

Merkimiðar: , , , ,

1 athugasemd

Tilvísanir

  1. Svartsokka » Viðburðir » REYKJAVÍK-9 / styrktartónleikar