Svartsokka

hlutdrægni við mótlæga fréttamennsku

Markaðsetning skotvopna fyrir börn

29/11/09 • Flokkur: Fréttir

kids_with_guns

Vopnaframleiðendur hafa undanfarið haft áhyggjur af því að byssueign í Bandaríkjunum sé að minnka. Því hafa verið settar af stað auglýsingaherferðir sem beint er að börnum í þeim tilgangi að auka kaup á byssum. Byssueign í Bandaríkjunum hefur dregist saman undanfarna áratugi og er nú einungis byssur á þriðja hverju heimili. Þetta þykir vopnaframleiðendum og NRA slæm þróun og beina því sjónum sínum að því að auka áhuga barna á skotvopnum, meðal annars með tímaritum á borð við þetta.

Vopnaframleiðendur hafa undanfarið horft sérstaklega til þess beina markaðssetningu sinni að börnum til þess að hug og hjörtu þeirra strax á unga aldri. Talað er um nauðsyn þess að „fjárfesta“ í börnum til þess að þau geti orðið neysluóðir byssubjálfar er þau vaxa úr grasi. Vopnaframleiðendur hafa komist að því að börn séu nauðsynlegur þáttur í því að viðhalda „réttindum“ skotvopnaeigenda til þess að bera vopn.

Í þessum tilgangi hafa verið sett upp byssumót fyrir börn á aldrinum 8 til 12 ára, sem og ókeypis námskeið þar sem börnum er kennt að handleika skammbyssur og vélbyssur. Eina skilyrðið er að það sé undir eftirliti fullorðinnar manneskju með réttindi til að leiðbeina fólki um skotvopn. Þess má geta að 29 þúsund börn undir átján ára aldri hafa látið lífið undanfarinn áratug vegna notkunar skotvopna. Þessi dauðsföll eiga sér einnig stað undir eftirliti, eins og í tilfelli átta ára drengs sem óvart drap sig í fyrra eftir að hafa verið rétt hlaðin uzi vélbyssa af leiðbeinanda á skotvopnanámskeiði.

Merkimiðar: ,

Ekki hægt að gera athugasemd.