Lýðræðið fótum troðið
12/12/09 • Flokkur: Fréttir
CJA (Climate Justice Action) kallaði til blaðamannafundar í dag vegna fjöldahandtökunnar og talaði um að “friðsamlegir mótmælendur hafi verið glæpkenndir. Aðgerðir lögreglu í mótmælunum voru algjörlega tilefnislausar og brugðist var við með yfirgengilegum hætti.”
Þetta eru ekkert annað en skilaboð frá yfirvöldum að valdi mun verða beitt ef minnstu grunsemdir eru um óhlýðni við lögreglu.
Stuttu seinna söfnuðust aðstandendur þeirra handteknu og aðrir sem sýna vildu samstöðu, fyrir framan fangelsin og fóru fram á að fólkinu yrði sleppt. Það er nokkið ljóst að búið var að ákveða fyrirfram að handtökurnar myndu eiga sér stað.
Fólk hrópaði á ýmsum tungumálum fyrir fram fangelsið í Valby. Ræðuhöld með tónlist á milli hafa sett svip sinn á mótmælin fyrir framan fangelsið og mun halda áfram fram eftir nóttu. “Lýðræðinu er nauðgað þegar fólk er svipt frelsi sínu með þessum hætti” segir einn ræðuhaldaranna og talsmaður Solidarity Initiative.
Nú hefur lögreglan lokað leiðinni að fangelsinu með bílum og lögreglumönnum og fólkinu er haldið í 25 metra fjarlægð. Aðstandendur létu það ekki á sig fá og brutu niður hindranir lögreglu og nokkrir hafa verið handteknir í viðbót.
Það er mikið áhyggjuefni að lögreglan hefur leyfi til þess að handtaka um þúsund manns án gruns um glæpsamlega hegðun. Hverja er lögreglan eiginlega að verja? Munum við sjá lögregluna beita fleiri Preventive Arrests á næstunni? Munu fjölmiðlar sjá til þess að Preventive Arrests verði hluti af orðræðunni og almenningsálitið taki það í fóstur?
968 manns voru handteknir sunnudaginn 12.desember í friðsömum mótmælum á Loftslagsráðstefnu Sameinuðu Þjóðanna í Kaupmannahöfn.
