Svartsokka

hlutdrægni við mótlæga fréttamennsku

Lokadagar mótmælanna

19/12/09 • Flokkur: Fréttir

peoples-assemblyÞann 16.desember héldu nokkrar mismunandi göngur til Bella Center, þar sem hið opinbera loftslagsblaður þjóðarleiðtoganna fór fram, í þeim tilgangi að setja upp loftslagsþing fyrir almenning. Lögregla hindraði fjölda fólks aðgöngu með notkun kylfa og piparúða en töluverður hópur fólks komst þó alla leið inn á svæðið umhverfis Bella Center.

Fyrr um daginn hafði fjölmörgum fulltrúum grasrótarhreyfinga á borð við Friends of the Earth og Vía Campesina verið hent út af opinberu ráðstefnunni, að sögn vegna ofbókunar. Líklegri ástæða er sú að þau hafi ekki verið að segja það sem valdameiri aðilar vildu heyra. Í kjölfarið hófu þau setumótmæli. Stuttu seinna reyna meðlimir þessara sömu samtaka að komast út til þess að sameinast fólkinu á almenningsþinginu en var meinaður aðgangur af lögreglunni og barinn aftur inn í Bella Center með kylfum. Þar var þeim hvorki hleypt inn á ráðstefnuna né leyft að fara út. Að auki var fréttamönnum bannað að tala við þessa útilokuðu fulltrúa. Hafa margir bent á að þessi atburður hafi verið táknrænn fyrir valdaójafnrétti heimsins.

Rétt undir lok loftslagsráðstefnunnar í Kaupmannahöfn kröfðust um 1.500 manns réttlætis og lýstu yfir stuðningi með þeim rúmlega 1.800 manns sem voru handteknir á meðan á ráðstefnunni stóð. Af þessum fjölda handtekinna voru einungis 16 einstaklingar ákærðir. Auk óbreytts almennings voru 26 götulæknar handteknir og fjölmargir blaða- og fréttamenn voru áreittir af lögreglunni. Fimm talsmenn Climate Justice Action (CJA) hafa verið handteknir undanfarna daga, sem virðist vera tilraun til að koma í veg fyrir að skilaboð þeirra komist til almennings. Í stuttu máli sagt var enginn óhultur fyrir ágangi lögreglu. Þetta segir móðir einnar stúlku sem var handtekin benda til mikils uppgangs fasisma, eins og kemur fram á http://indymedia.dk/. Þar má einnig nálgast nánari upplýsingar um atburðarrásina.

Fleiri myndir frá tilraunum ráðstefnugesta til að komast úr Bella Center og að almenningsþinginu:

4190348350_311885ab31_o

4190357754_28426ceaf3_o

Merkimiðar: , ,

1 athugasemd

Tilvísanir

  1. Svartsokka » Greinar » Haltu þér saman! Af kynningarfundi umhverfisráðuneytisins