Lögreglan ræðst inn í Cristianíu
14/12/09 • Flokkur: Fréttir
Götuvirki og vegatálmar voru reistir fyrir utan Kristíaníu fyrr í kvöld þar sem kvöldhátíð fór fram. Ofurvatnsbyssan sem Svartsokka sagði frá um daginn var gerð reiðubúin fyrir utan innganginn og eflaust full af táragasi.
Lögreglan hefur handtekið tugi ásamt því að stoppa alla og hóta þeim öllu illu þegar gengið er út úr fríríkinu. Engum er hleypt inn eins og er. Táragasi var svo kastað stuttu seinna í innganginn og lögreglan réðst inn bakameginn.
Uppfærsla #1: Kveikt hefur verið í vegatálmunum fyrir utan og innganga lögreglunnar gert erfitt fyrir.
Uppfærsla #2: Lögreglan skaut táragasi inn í hvíta samkomu tjaldið og flestir handteknir og færðir í búrin með rútum.
