Lögregla stelur hjólum og iPod
15/12/09 • Flokkur: Fréttir
Í dag kl 16:45 réðst lögreglan inn í Candy Factory þar sem Bike Block hefur verið í undirbúningi síðustu vikur. Candy Factory hefur fyllst af ónýtum hjólum undanfarnar vikur og aðgerðarsinnar hafa verið önnum kafnir við að búa til sérsmíðuð hóphjól sem annan möguleika á almenningssamgöngum.
Nota á hjólin þann 15.desember í mótmælagöngunni “Peoples summit for Climate Justice” sem endar á því að fara inn í Bella Center og breyta því í Loftslagsráðstefnu Fólksins en ekki Losunarheimildasamkvæmi Nýfrjálshyggjunnar.
Lögreglan réðst inn á vinnusvæði Bike Bloc án aðvarana og hóf að leita á öllum og einnig að einhverju í öllu húsinu, öðru en verkfærum gerir Svartsokka ráð fyrir. Allir innandyra jafnt sem utan var ýtt inn í húsið og hver og einn þurfti að gefa upp persónuupplýsingar. Aðspurð sagðist lögreglan ekki hafa heimild til að leita en stuttu eftir breytti frásögn sinni og sagði að einn lögreglumannan væri með hana. Það reyndist vera lygi.
Fólkið innandyra var látið standa kyrrt á meðan leitinni stóð og fékk ekki að fylgjast með því sem var að ske hjá þeim 100 lögregluþjónum sem voru inní húsinu. Lögreglan hélt leitinni áfram í nokkra klukkutíma í viðbót og endaði á því að taka með sér iPod, farsíma, plaggöt, pappíra, kalendar og þrjú reiðhjól. Einnig var einn þeirra handtekin fyrir að vera með vasahníf í vasanum sem hann var að nota á meðan hjólaviðgerðunum stóð.
Svartsokka undrast á því að það hafi ekki nema 100 lögreglumenn tekið þátt í þjófnaðnum í Candy Factory en ástæður þess eru skýrar; Hinir 4900 lögregluþjónarnir eru eflaust að brjóta niður hurðir hjá námsmönnum í Kaupmannahöfn og gera smjörhnífa, kúlupenna og grunsamlega prjónaða ullarsokka upptæka.
