Svartsokka

hlutdrægni við mótlæga fréttamennsku

Khimki skógurinn í hættu

05/9/10 • Flokkur: Fréttir

Um miðjan ágúst mótmæltu 500 manns fyrir framan stjórnsýslubyggingu í Moskvu vegna ákvörðunar yfirvalda um að byggja hraðbraut í gegnum Khimki skóginn sem er staðsettur rétt fyrir utan borgina utan borgina. Fólkið kastaði reyksprengjum og braut rúður.

Vegurinn á að draga úr krónískri umferðarteppu sem myndast nálægt Sheremetyevo flugvellinum og tengir Moskvu við Sankti Pétursborg.

Nokkrum dögum áður höfðu þúsundir manns safnast saman á Pushkin torgi á tónleika sem haldnir voru til að vekja athygli á málstaðnum. Skógurinn er friðaður og vistkerfi þess stefnt í voða ef rist verður í gegnum hann með þessum hætti. Margra alda gamall eikarskógur, elgir, villisvín og fjöldi fuglategunda verða einnig í hættu. Trönuberjamýri í skóginum mun hverfa og  óvíst er um engi Klyazma árinnar sem rennur þarna í gegn.

Baráttan hefur skilað miklum árangri og þann 27.ágúst voru fyrirætlanir yfirvalda settar í biðstöðu þar til mat hefur verið gert á vistfræðilegum skaða sem framkvæmdirnar munu valda.

Merkimiðar: , , , ,

Settu inn athugasemd