Hústaka að Vesturgötu 51
07/4/10 • Flokkur: FréttirSíðastliðinn föstudag var hús tekið yfir að Vesturgötu 51.
Í tilkynningu frá hústökufólkinu kemur fram að í dag standi „fjölmörg hús yfirgefin og ónýtt, á meðan fólk berst við
kerfið og bankana til þess að halda þaki yfir höfði sér og fjölskyldu sinnar. Öll félagsleg starfsemi sem fylgir ekki nútíma
hugsun um gróða og völd á sér hvergi stað. Sköpun og líf er ekki jafnrétthátt í samfélagi dagsins í dag og „eignaréttur“
og pappírshald. Vegna þessa eru auð hús sem leyft er að grotna niður móðgun við fólkið í samfélaginu.“
Nánari upplýsingar um hugmyndafræðina að baki hústökunni má finna á vefnum hustaka.org.

