Heimili víkja fyrir afþreyingarsvæði
05/9/10 • Flokkur: Fréttir
Sex Palestínumenn særðust og fjórir voru handteknir í kjölfar grjótkasts að lögreglumönnum og skipulagsfulltrúum ísraelskra borgaryfirvalda í Jerúsalem. Þeir voru í vettvangsferð í palestínskri byggð í Austur-Jerúsalem þar sem byggja á afþreyingarsvæði fyrir Ísraela.
Fyrr í sumar samþykktu borgaryfirvöld tillögu um niðurrif á 22 palestínskum heimilum í Silwan til að byggja fornminjagarð.
