Svartsokka

mótvægi við hlutdræga fréttamennsku

Heimildarmyndasafn

27/1/10 • Flokkur: Fréttir

Svartsokka býður nú upp á Heimildarmyndir til niðurhals í flokknum Kvikvarp. Hér verða settir inn tenglar á margvíslegar heimildarmyndir, ásamt stuttum umfjöllunum um þær myndir sem um ræðir.
Margar af myndunum eru illfinnanlegar og oft á tíðum dýrar í innkaupum. Því er það Svartsokku mikil gleði að geta liðkað til fyrir frjálsu og fríu aðgengi að upplýsingum og fræðsluefni með þessum hætti.

Sumar myndirnar eru í formi torrent-skráa. Í þeim tilfellum þarf notandi að sækja sér forrit á borð við uTorrent sem sækja má hér. Þegar forritið hefur verið sett upp í tölvunni þarf bara að smella á torrent-tengilinn og velja að opna skránna með uTorrent sem mun sjá um niðurhalið. Eini ókosturinn við torrent-skrárnar er að til að fleiri geti sótt myndirnar þarf fólk að dreifa þeim áfram, seeda þeim, sem gerist sjálfkrafa svo lengi myndin liggur á harða disknum þar sem hún var vistuð. Ekki eru allir notendur jafn duglegir við þetta og veldur það því að oft ‘deyja’ torrent-skrár, þ.e. engir notendur eru eftir með alla myndina til dreifingar.

Því er meirihluti myndanna vistaðar á Rapid Share. Þar liggja þær í 100-200MB bútum sem þarf að niðurhala og opna í Winrar forritinu (niðurhal hér) til að pakka út myndinni sjálfri.
Rapid Share reynir auðvitað að fá fólk til að kaupa sér forréttindaaðgang að hýslum þeirra með því að leyfa ókeypis notendum eingöngu að sækja eina skrá í einu með u.þ.b. hálftíma biðtíma á milli skráa, sem getur verið hvimleitt ef verið er að sækja mynd sem er bútuð í marga hluta. Í slíkum tilfellum er mælt með að sótt sé forritið Download Manager (hér). Með því er hægt að klippa og líma alla tengla fyrir viðkomandi mynd inn í forritið, sem sér svo um að sækja bútana einn af fætur öðrum.

Ef tengill við mynd hættir að virka hafið vinsamlegast samband við Svartsokku og hún mun uppfæra eða fjarlægja tengilinn.

Þá er bara að taka fram skippaða poppið og djúsinn, bjóða vinum og vandamönnum í heimsókn og vonandi eiga uppbyggilegar og innblástursríkar umræður um efni myndanna.

Merkimiðar: ,

1 athugasemd

Tilvísanir

  1. Svartsokka » Kvikvarp » Table, Bed, Chair – Amsterdam Squatters