Græn orka-tær lygi: Sendiráð Íslands litskreytt
19/12/09 • Flokkur: FréttirAðfaranótt 16.desember var málningu slett á sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn. Einnig voru máluð slagorð á borð við “Græn orka – tær lygi”, og “virkjanir og jarðorka fyrir álver ≠ græn orka”. Þetta er til að vekja athygli á því að það sé ekki til neitt sem heitir græn orka og síst af öllu sé orka “græn” ef hún er einungis notuð fyrir stóriðju.
Hinar fölsku lausnir sem beint hefurverið að fólki í Kaupmannahöfn felast meðal annars í notkun „grænnar orku“. Græn orka veldur líka mikilli eyðileggingu á jörðinni en mikið er reynt að breiða yfir það til þess að hægt sé að halda áfram kapítalískri iðnvæðingu, sem heldur áfram að gleyp
a allt það líf sem fyrirfinnst.
Í fréttatilkynningu á indymedia kemur fram að á COP15 megi greinilega sjá að grænt sé ekki litur náttúrunnar, heldur felulitur kapítalismans. Endar hún á viðvörun til Íslendinga um að misgjörða þeirra verði hefnt.
Nánari upplýsingar um falskar lausnir og “græna orku” er að finna hér.
Örstutt um fréttaflutning:
Athyglisvert er að skoða frétt rúv um málið, þar sem indymedia er átalið fyrir að taka fréttina beint upp úr fréttatilkynningu þeirra sem að verknaðinum stóðu. Benda má á að það er alls ekki einsdæmi að fréttir séu teknar nær beint upp úr fréttatilkynnningum. Það er einnig gert á rúv. Nokkrum dögum síðar er þar flutt frétt um að álverð fari hækkandi og því bætt við: “Þetta eru góð tíðindi fyrir Ísland”. Þetta er ágætt dæmi um það hversu gagnrýnislaus fréttaflutningur er ef hann kemur frá yfirvöldum og ráðandi orðræðu, en á sama tíma er allt átalið sem ekki fellur þeim að skapi.

