Svartsokka

hlutdrægni við mótlæga fréttamennsku

Fréttablaðið Róstur

02/3/10 • Flokkur: Fréttir

bladastandurUndanfarið hefur nýr prentmiðill verið gríðarlega mikið í umræðunni. Hann ber nafnið Róstur og 1. tölublaðið mun koma út á fimmtudaginn 4.mars. Blaðið er unnið af hugsjónafólki launalaust og er rekið án hagnaðar. Svo segir einnig að ef einhver hagnaður verður af blaðinu eftir prentkostnað þá renni hann til góðgerðarmála. Prentkostnaðurinn er 120 kr. hvert blað. Samkvæmt vef Rósta kemur fram að ekki sé hægt að kaupa auglýsingapláss í blaðið né mun það taka við styrkjum frá fyrirtækjum né stjórnmálaflokkum.

Heyrst hefur að aðstandendur blaðsins muni dreifa sér um borgina á föstudag og laugardag og kynna blaðið. Hægt verður að nálgast blaðið í Kolaportinu, Kringlunni, Smáralind, Hlemm, Mál & Menningu og tala þar beint við fólkið sem tók þátt í gerð blaðsins með einum eða öðrum hætti .Einnig er hægt að fá blaðið sent heim ef sendingarkostnaður er greiddur en Svartsokka hvetur fólk hinsvegar til þess að hafa samband við blaðið og komast að því hvar hægt sé að nálgast það. Svartsokka fékk senda mynd af blaðastandi sem hægt er að fá sendan til að taka þátt í dreifingu blaðsins og honum fylgja 20 eintök.

Svartsokka ber miklar væntingar til Rósta og þá hugmyndafræði sem býr að baki blaðinu. Prentmiðill án auglýsinga verður eflaust tormeltur í fyrstu. Að hlutfallið sé 100% efni / 0% auglýsingar í stað 50% efni / 50% verður eflaust til þess að blaðið fari ekki í ruslið eftir lesningu heldur að það verði geymt áfram til frekari lesturs síðar. Blaðið verður einnig með hefðbundnu sniði, þ.e.a.s. innlendar og erlendar fréttir, aðsendar greinar, kvikmynda-  og bókagagnrýni, o.s.f.v.

Vonandi munu Róstur vekja samfélagið til umhugsunar um hvert það stefnir.

Ekki hægt að gera athugasemd.