Svartsokka

mótvægi við hlutdræga fréttamennsku

Flóttamaður í felum

23/11/09 • Flokkur: Fréttir

Henry Turay er ekki einn um það að hafa flúið borgarastyrjöldina í Sierra Leone sem geisaði í um áratug. Af um fimm milljónum íbúa þurfti ein milljón þeirra að flýja heimili sín. Sumir gátu snúið aftur en aðrir, líkt og Henry, höfðu ekkert til að snúa aftur til.

Borgarastyrjöldin í Sierra Leone geisaði í áratug. Af um fimm milljónum íbúa þurfti ein milljón þeirra að flýja heimili sín.

Hælisleitandinn Henry Turay er nú búinn að vera í felum í fimm daga en hann hefur farið huldu höfði síðan stjórnvöld tóku ákvörðun um að vísa honum úr landi. Ljóst er að íslensk stjórnvöld hafi ekki tekið mál Henry fyrir áður en ákvörðun um brottvísunina var tekin.

Í tilkynningu sem Henry sendi frá sér segir að, þrátt fyrir ýmsa erfiðleika, sé skárra að vera í felum en vera sendur úr landi. Hann biðlar til yfirvalda að taka mál sitt fyrir þar sem hann þurfi að fá að njóta sinna grundvallar mannréttinda eftir að hafa verið á flótta í þrettán ár. Henry segir í tilkynningu sinni að hann muni berjast fyrir þessum réttindum sínum þar til yfir líkur.

Henry Turay flúði land þegar hann var 11 ára, eftir að móðir hans var drepin í borgarastyrjöldinni í Sierra Leone sem stóð yfir frá 1991-2000.Talið er að um 50.000 manns hafi látist í þeim átökum og margfalt fleiri neyddust til að flýja heimili sín. Þar að auki voru um 10.000 börn neydd til þess að berjast í Sierra Leone á þessum árum. Ástæður borgarastyrjaldarinnar má einna helst rekja til spillingar stjórnvalda í tengslum við demantaviðskipti. Eftirspurn eftir glingri á Vesturlöndum hefur því bein áhrif á líf fólks á borð við Henry Turay.

Yfirlýsing Henry frá því að hann fór í felur þann 19.nóvember:

I, Henry Turay, refugee from Sierra Leone hereby declare that I have gone into hiding and do not plan to come out again until the Icelandic authority grants me an asylum, or at the very least insure me that my case will be taken up here in Iceland. Ones my application for asylum was rejected by the immigration authority (Útlendingastofnun)after only a month stay the red cross assisted me in appealing against the decision and my files were sent to the ministry of justice and human rights.

Today, the 18th of November, only a week after my appeal the police tried to arrest me for a deportation to Germany or worse yet, Sierra Leone. I believe this police action was highly illegal as the ministry can not in any seriousness have considered my case in such a short time.

My life is in a great danger at the moment because of the lack of human rights, high crime rate, corruption and violence in my country of origin. I escaped from my home country at the age of 11 after my mother was murdered during the civil war. I have spent more than 8 years in Europe without permit to stay and lived as a refugee for 13 years.

I have no family, no connections or relations in Sierra Leone. In fact I have spent most of my life out of the country. Iceland is my home now, I want to stay here. I urge the Icelandic government to take up my case again and grant me an asylum. Until then I shall stay in hiding.


Merkimiðar: , ,

Ekki hægt að gera athugasemd.