Svartsokka

hlutdrægni við mótlæga fréttamennsku

Fátækt skolað í ræsið

05/9/10 • Flokkur: Fréttir

Hundruð íbúa í borginni Guangzhou, þriðju stærstu borg í Kína, hafa átt í ströngu að stríða síðustu mánuði vegna tilskipun yfirvalda um að rífa niður fátækrahverfi vegna Asíuleikana sem haldnir verða í nóvember. Íbúar hafa reynt að standa vörð við heimili sín sem dugar þó skammt því niðurrifsvélarnar fá lögreglufylgd sem ryðja veginn. Asíuleikarnir eru þeir stærstu á eftir Ólympíuleikunum í Peking árið 2008 og hafa yfirvöld sett af stað yfirgripsmiklar hreinsunaraðgerðir á nærliggjandi hverfum sem gerir hundruðir fjölskyldna heimilislausar. Einnig eru reglur um innflytjendur hertar sem heimilar lögreglu beinskeyttari aðgerðir gagnvart þeim en á svæðinu sem um ræðir búa fjölskyldur frá Mið-Austurlöndum og Afríku ásamt Kínverjum.

“Niðurrifin munu hraða á umbótum á samgöngukerfinu sem setja á upp í kringum leikana” er haft eftir yfirlýsingu borgaryfirvalda.

Lögreglan beitir ofbeldi óspart gagnvart íbúum hverfisins og hafa tugir manns verið barðir til óbóta samkvæmt South China Morning Post. “Við munum verjast þar til þeir drepa okkur” segir einn íbúana í samtali við blaðið. Lögreglan hefur gengið berserksgang í hverfinu og gengið í skrokk á fólki fyrir það eitt að vera nálægt atburðinum. Íbúarnir hafa neitað að færa sig og svarað lögregluofbeldinu með grjótkasti sem svara tilbaka með táragasi.

Borgarfulltrúar eru einnig ásakaðir um spillingu með því að úthluta lóðareignum undir markaðsverði til þeirra fyrirtækja sem munu koma til með að endurgera hverfin.

Merkimiðar: , , , , , ,

Settu inn athugasemd