Svartsokka

hlutdrægni við mótlæga fréttamennsku

“Ekkert annað en pyntingar”

13/12/09 • Flokkur: Fréttir

hopurBlaðamannfundinum er nú lokið og margir sögðu frá upplifun sinni af handtökunni í gær og í dag. “Þetta eru ekkert annað en pyntingar. 400 manns var troðið inn í búr og fólki blæddi undan plasthandjárnum” segir Kristofer Lundberg frá Gautaborg. “Fólk grét, fékk ofsahræðsluköst og meig á sig og þann sem sat í klofinu fyrir framan þau. Lögreglan hunsaði þetta alltsaman.

Þar á eftir vorum við flutt í búrin. Einn í mínu búri fékk hræðslukast og ekkert var gert, fyrr en það leið yfir hann. Aðrir þurftu að fara á klósettið en því var ekki sinnt.” heldur hann áfram.

Einn þeirra handteknu tilkynnti að hann væri með sykursýki og þyrfti að fá lyfin sín úr töskunni sem lögreglan hafði gert upptæka. Hann fékk þau ekki og læknirinn á staðnum tilkynnti honum að þeir væru ekki með nein slík lyf. Þegar honum var sleppt 12 tímum seinna höfðu lyfin hans verið fjarlægð úr töskunni.

Þetta er aðeins brot af því sem gerðist og á næstu dögum munu fleiri mál koma upp þar sem lögreglan misnotaði vald sitt og braut gegn þeim ákvæðum sem sett voru fyrir ráðstefnuna.

Merkimiðar: , , , , , , ,

Ekki hægt að gera athugasemd.